Lotus og Britishvolt í samstarf Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 31. janúar 2022 07:01 Skissa af Lotus rafbíl, sem væntanlega mun vera Type 135. Lotus sendi nýlega frá sér skissu af væntanlegum rafbíl frá framleiðandanum. Bíllinn er væntanlegur árið 2026 og mun bera nafnið Type 135. Lotus og Britishvolt hafa hafið samstarf um að smíða nýstárlega drifrafhlöðu í Lotus sportbíla.
Samstarfið mun snúast um að þróa saman nýstárlega rafhlöðutækni sem er ætlað að knýja áfram næstu kynslóð rafsportbíla frá Lotus. Drifrafhlaðan á að nýtast fyrst í nýjan rafsportbíl sem skissa var sýnd af samhliða kynningu félaganna á samstarfinu. Britishvolt er leiðandi í drifrásarafhlöðuframleiðandi í Bretlandi ásamt því að stunda umfangsmiklar rannsóknir og þróun sem skapar hugverkaverkaverndaða tækni. Ætlunin er að rafhlaðan í Lotus bílnum verði fljót að hlaða sig og að varðveislu geta hennar verði hámörkuð án þess að hún vigti mjög mikið. Lotus hefur nýlega fjárfest fyrir 100 milljónir sterlingspunda í verksmiðjum sínum á Bretlandseyjum. Þar sem meðal annarra eru framleiddir Evija hreinn últrarafbíll og Emira sport bíllinn. „Lotus er spennt fyrir samstarfinu með Britishvolt. Við ætlum í sameiningu að þróa drifrafhlöðu sem sýnir hvers megnugir rafsportbílar frá Lotus eru. Þetta eru fyrstu skrefin í spennandi vegferð í átt að nýjum rafsportbíll frá Lotus og enn eitt skrefið í átt að sjálfbærni og endurnýtanlegri raforku sem geymd er í rafhlöðum,“ sagði Matt Windle stjórnandi Lotus. „Á síðasta ári tilkynntum við að við ætluðum að framleiða hreinan rafbíl og í fyrsta mánuði ársins kynnum við annað stórt skref í þeirri vegferð. Á komandi mánuðum munum við kynna Type 132, nýjan hreinan rafjeppling frá Lotus og við höfum staðfest að þrír nýir rafbílar til viðbótar eru væntanlegir,“ bætt Windle við.
Vistvænir bílar Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent