Fyrsti heimaleikur Stólanna í 56 daga og sá fyrsti eftir 43 stiga tap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2022 16:00 Pétur Rúnar Birgisson og félagar í Tindastólsliðinu spila í kvöld fyrsta heimaleik sinn á árinu 2022. Vísir/Bára Dröfn Tindastóll tekur á móti Njarðvík í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld en það er óhætt að segja að þetta sér langþráður heimaleikur fyrir Sauðkrækinga. Tindastóll hefur nefnilega ekki spilað á heimavelli í deildinni síðan átta dögum fyrir jól en í kvöld verða liðnir 56 dagar frá síðasta heimaleik liðsins. Það er ekki aðeins þessi langa bið heldur líka hvernig síðasta heimaleikur endaði. Tindastóll tapaði nefnilega með 43 stigum þegar þeir spiluðu síðast í Síkinu. Heimamenn hafa því þurft að bíða lengi eftir að bæta fyrir það tap. Íslandsmeistarar Þórs úr Þorlákshöfn mættu þá á Krókinn og fögnuðu 109-66 sigri. Það var stærsta tap Tindastóls á heimavelli í úrvalsdeild karla síðan 27. febrúar 2005. Stólarnir unnu fjóra af fimm fyrstu heimaleiki tímabilsins en tapið í síðasta leik var það stórt að liðið er í mínus í nettóstigum skoruðum í Síkinu. Mótherjarnir í kvöld eru sjóðheitir Njarðvíkingar sem hafa unnið þrjá leiki í röð og eru eins og er í öðru sæti deildarinnar. Tindastóll hefur á sama tíma tapaði þremur leikjum í röð en þeir hafa allir verið á útivelli. Leikur Tindastóls og Njarðvíkur hefst klukkan 18.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Tindastóll hefur nefnilega ekki spilað á heimavelli í deildinni síðan átta dögum fyrir jól en í kvöld verða liðnir 56 dagar frá síðasta heimaleik liðsins. Það er ekki aðeins þessi langa bið heldur líka hvernig síðasta heimaleikur endaði. Tindastóll tapaði nefnilega með 43 stigum þegar þeir spiluðu síðast í Síkinu. Heimamenn hafa því þurft að bíða lengi eftir að bæta fyrir það tap. Íslandsmeistarar Þórs úr Þorlákshöfn mættu þá á Krókinn og fögnuðu 109-66 sigri. Það var stærsta tap Tindastóls á heimavelli í úrvalsdeild karla síðan 27. febrúar 2005. Stólarnir unnu fjóra af fimm fyrstu heimaleiki tímabilsins en tapið í síðasta leik var það stórt að liðið er í mínus í nettóstigum skoruðum í Síkinu. Mótherjarnir í kvöld eru sjóðheitir Njarðvíkingar sem hafa unnið þrjá leiki í röð og eru eins og er í öðru sæti deildarinnar. Tindastóll hefur á sama tíma tapaði þremur leikjum í röð en þeir hafa allir verið á útivelli. Leikur Tindastóls og Njarðvíkur hefst klukkan 18.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Síðustu deildarleikir Tindastólsliðsins: 7. febrúar: 9 stiga tap á útivelli á móti Breiðabliki (98-107) 3. febrúar: 8 stiga tap á útivelli á móti Grindavík (93-101) 14. janúar: 25 stiga tap á útivelli á móti Val (71-96) 10. janúar: 12 stiga sigur á heimavelli á móti Þór Ak. (103-91) 16. desember: 43 stiga tap á heimavelli á móti Þór Þorl. (66-109)
Síðustu deildarleikir Tindastólsliðsins: 7. febrúar: 9 stiga tap á útivelli á móti Breiðabliki (98-107) 3. febrúar: 8 stiga tap á útivelli á móti Grindavík (93-101) 14. janúar: 25 stiga tap á útivelli á móti Val (71-96) 10. janúar: 12 stiga sigur á heimavelli á móti Þór Ak. (103-91) 16. desember: 43 stiga tap á heimavelli á móti Þór Þorl. (66-109)
Subway-deild karla Tindastóll UMF Njarðvík Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Sjá meira