Naumur sigur Liverpool á Turf Moor Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. febrúar 2022 16:10 Fabinho fagnar marki sínu sem tryggði Liverpool sigur á Burnley. getty/Chris Brunskill Liverpool minnkaði forskot Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar aftur niður í níu stig eftir 0-1 sigur á Burnley á Turf Moor í dag. Fabinho skoraði eina mark leiksins fimm mínútum fyrir hálfleik eftir hornspyrnu. Þetta var þriðja mark Brassans í síðustu fjórum leikjum. Liverpool þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum gegn baráttuglöðu liði Burnley. Alisson átti góðan leik í marki gestanna og varði nokkrum sinnum vel. Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna veikinda. Liðið er enn á botni deildarinnar en það hefur aðeins unnið einn leik í vetur. Burnley er sjö stigum frá öruggu sæti en á leiki til góða á liðin fyrir ofan. Liverpool er með 54 stig í 2. sæti deildarinnar, níu stigum á eftir City en á leik til góða á meistrana. Enski boltinn