Alvarlegar athugasemdir gerðar við þyrluskutl Gæslunnar með Áslaugu Örnu Jakob Bjarnar skrifar 25. febrúar 2022 11:14 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra. Ríkisendurskoðun telur vert að brýna fyrir ráðherrum, Gæslunni og öðrum einstaklingum að ferðir með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar. vísir/vilhelm „Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar.“
Þetta kemur meðal annars fram í úttekt á Landhelgisgæslunni en Ríkisendurskoðun óskaði eftir því að Gæslan upplýsti hversu oft loftför hennar væru notuð til að flytja ráðherra, ráðuneytisstjóra og aðra aðila innan eða á vegum stjórnsýslunnar á árunum 2018‒20. Í svari stofnunarinnar kom fram að ráðamenn voru meðferðis í tíu flugverkefnum. Tilgreint er sérstaklega að eitt þessara verkefna hafi verið í ágúst 2020 en þá fékk Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þá dómsmálaráðherra, þyrlu Gæslunnar til að flytja sig frá Gesthúsinu Reyni við Reynisfjöru að morgni 20. ágúst. Þar varði ráðherra fríi sínu í hestaferð. Þyrlan lagði af stað frá Reykjavík kl. 07:04, sótti dómsmálaráðherra og var komin aftur til Reykjavíkur klukkan 08:40 á fund. Málið vakti verulega athygli á sínum tíma en Áslaug Arna baðst afsökunar á þessum ferðum sínum og útskýrði að Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafi lagt þetta til. Skutl Gæslunnar með ráðamenn almennt komst svo með óbeinum hætti á dagskrá aftur eftir að það var til umfjöllunar í sjónvarpsþáttunum Verbúðinni, sem límdi sig í vitund þjóðarinnar. Mikael Torfason, einn handritshöfunda, telur sig hafa heimildir fyrir því að Gæslan hafi á löngu tímabili þjónað því hlutverki að skutlast með ráðamenn á sínum farartækjum, hvor heldur var í lofti eða legi. Aðeins ein þyrla til reiðu og hún nýtt undir ráðherra Í skýrslunni er sérstaklega bent á að dagana 19.-22. ágúst 2020 hafi verið unnið að viðhaldi þyrlunnar TF-GRO og því var TF-EIR eina tiltæka þyrla stofnunarinnar þann 20. ágúst 2020 þegar hún var nýtt til að fljúga með ráðherra til og frá umræddum fundi. Hér getur að líta flug þyrlu Landhelgisgæslunnar að morgni 20. ágúst 2020. En mat Landhelgisgæslunnar er að viðbragðsgeta stofnunarinnar hafi ekki verið skert og „ef komi til útkalls þegar farþegar eru um borð sé þeim hleypt frá borði eins fljótt og mögulegt er til að sinna megi útkalli. Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar af þessu tilefni kom fram að flug sem þessi væru innan flugtímaáætlunar stofnunarinnar og því ekki um óeðlilega tilhögun að ræða.“ Ríkisendurskoðun óskaði einnig eftir því að dómsmálaráðuneytið gerði grein fyrir því hvort endurskoðun á verklagi við ferðir ráðherra í boði Landhelgisgæslunnar en Áslaug Arna hafði í tengslum við málið gefið til kynna að vert væri að ráðast í slíkt. Ráðuneytið afhenti Ríkisendurskoðun drög að reglum sem unnið sem eiga að koma í veg fyrir að vafi leiki á réttmætri nýtingu loft- og sjófara stofnunarinnar við æfingar og önnur verkefni sem ekki eru sérstaklega talin upp í lögum. Brýnir fyrir ráðamönnum að um sé að ræða öryggisbúnað Ríkisendurskoðun telur vert að brýna fyrir ráðherrum, Gæslunni og öðrum einstaklingum að ferðir með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar: Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur reynst liðlegur við ráðamenn þegar þeir þurfa að komast ferða sinna. Á árunum 2018‒20 voru ráðamenn meðferðis í tíu flugverkefnum.vísir/Egill Aðalsteinsson „Tæki stofnunarinnar eru öryggisbúnaður sem keyptur er eða leigður sem tæki til löggæslu og björgunarstarfa til hagsbóta fyrir almenning en ekki til einkaerinda.“ Þá telur Ríkisendurskoðun eðlilegt að settar verði viðmiðunarreglur um afnot æðstu stjórnar ríkisins af loftförum í eigu og leigu stofnana ríkisins, þar á meðal Landhelgisgæslu Íslands og að forsætisráðuneytið kæmi þar að. „Yrðu reglurnar einkum látnar taka til flutninga vegna óvæntra atburða eða formlegra athafna á vegum æðstu stjórnar ríkisins en öll einkanot verði óheimil,“ segir í skýrslunni. Vísir óskaði á sínum tíma eftir kostnaðarmati á þessu skutli með ráðherra en fékk ekki nákvæmt svar, aðeins að kostnaður flugdeildar Gæslunnar sé metinn á ársgrundvelli.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Landhelgisgæslan Stjórnsýsla Tengdar fréttir Áslaug segir mistök að hafa þegið boð Gæslunnar Dómsmálaráðherra segir það hafa verið mistök að þiggja boð Landhelgisgæslunnar um þyrluflug frá Suðurlandi til Reykjavíkur og til baka. 25. ágúst 2020 11:46 Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis. 24. janúar 2022 07:00 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira
Áslaug segir mistök að hafa þegið boð Gæslunnar Dómsmálaráðherra segir það hafa verið mistök að þiggja boð Landhelgisgæslunnar um þyrluflug frá Suðurlandi til Reykjavíkur og til baka. 25. ágúst 2020 11:46
Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis. 24. janúar 2022 07:00