Tesla firrar sig ábyrgð: Situr uppi með milljóna króna tjón eftir að hafa ekið í poll Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. mars 2022 11:02 Hafþór bíður nú eftir nýrri rafhlöðu í Tesluna en kostnaður við hana og viðgerðina er áætlaður um fjórar milljónir króna. Það er helmingur kaupverðs bifreiðarinnar, sem var keypt í desember. Vísir/Vilhelm Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar. Þetta segir Hafþór Pálsson, sem varð fyrir því að glæný Tesla tjónaðist þegar hann ók í poll á dögunum.
Hafþór, sem hefur átt nokkra rafbíla, bæði frá Nissan og Tesla, segir málið vekja spurningar um það hvort Tesla-bifreiðar þoli akstur við íslenskar aðstæður. Atvik voru þau að bifreiðin var að koma af Sæbraut og upp slaufuna í átt að Ártúnsbrekku þegar hún fer í poll í hægri beygjunni. Ekkert gerist fyrst um sinn en skömmu síðar „deyr bíllinn“ að sögn Hafþórs og það kemur upp villumelding um að ekki sé nægt rafmagn á bílnum til að styðja allar aðgerðir. „Síðan reyni ég allt til að koma honum í gang aftur og sirka 40 mínútum seinna segir að 12 volta batteríið sé ónýtt og það verði ekki fleira gert. Og þá slökknar alfarið á bílnum; þá deyr hann alveg,“ sagði Hafþór í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun. Varnarbúnaður eyðilagði aðalrafhlöðuna Hafþór útskýrir bilunina sem svo að yfirleitt sé það þannig með rafbíla að ef eitthvað bilar þá tengist það í flestum tilvikum 12 volta batteríinu, sem sér flestum búnaði bifreiðarinnar fyrir rafmagni. Aðalrafhlaða bifreiðarinnar sér til þess að knýja bifreiðina sjálfa. Úr því sem komið var sá Hafþór sér ekki annað fært í stöðunni en að láta draga bifreiðina á verkstæði. Greining stóð yfir í um sólahring en í ljós kom að 12 volta batteríið var ekki ónýtt eftir allt saman. Hins vegar hefði komist raki inn að aðalrafhlöðunni, sem varð til þess að varnarbúnaður Teslunnar rauf tenginguna við rafhlöðuna, með þeim afleiðingum að hún eyðilagðist. Hafþór segist fyrst hafa fengið þau svör hjá Tesla á Íslandi að það væru allar líkur á að um væri að ræða ábyrgðatjón sem hann fengi bætt. Það breyttist hins vegar þegar á leið og tæknimenn og lögmenn erlendis vildu meina að ekki væri um ábyrgðatjón að ræða. Endanleg niðurstaða varð sú að til þess að raki næði jafn langt inn og gerðist hefði pollurinn þurft að vera minnsta kosti 20 sentímetra djúpur en í ábyrgðarskilmálum væri kveðið á um að Tesla bæri ekki ábyrgð á tjóni sem yrði eftir akstur í gegnum vatn af þeirri dýpt. „Eins og ég man þá eru held ég sextán sentímetrar undir bílinn og þá eru þetta kannski fjórir sentímetrar fyrir ofan. Þannig að ef Tesla-bíll, samkvæmt ábyrgðarskilmálum sem nota bene ég hef ekki lesið... Tesla aðilinn á Íslandi segir mér að þá er hann úr ábyrgð ef tjón verður við það að aka í dýpri poll en 20 sentímetrar,“ segir Hafþór. „Þetta er ekki í lagi“ Hafþór segist hafa orðið „bit“ og hafa fengið sömu viðbrögð hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Staðan nú sé sú að hann sé búinn að fá nei hjá Tesla og sé óviss um hvort hann fái tjónið bætt hjá tryggingunum þar sem tjónið sé klárlega ábyrgðatjón. Bíllinn, sem er af tegundinni Y og var keyptur í desember, hafi kostað 8,5 milljónir króna en tjónið geti numið um fjórum milljónum. Að sögn Hafþórs veit hann um tvo aðra Teslu-eigendur sem lentu í samskonar tjóni í sama votviðrinu. „Eftir þessa reynslu... þá er klárlega einhver hönnunargalli í bílnum miðað við íslenskar aðstæður,“ sagði Hafþór spurður um afstöðu sína til Teslu eftir það sem á undan væri gengið. „Það er talað um að þessir bílar hafi verið óralengi í notkun í Noregi... en eru svona miklar hlákur þar? Stórir pollar, stöðuvötn sem myndast skyndilega á götum eins og hérna á Íslandi?“ „Ég held að þetta sé stórathugavert; þetta er ekki í lagi.“
Neytendur Vistvænir bílar Tesla Bílar Bítið Veður Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Fleiri fréttir Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brenndandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Sjá meira