Fótbolti

Rúnar og félagar án sigurs í seinustu þrem

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Leuven eru án sigurs í seinustu þrem deildarleikjum.
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Leuven eru án sigurs í seinustu þrem deildarleikjum. Plumb Images/Getty Images

Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í OH Leuven eru nú án sigurs í seinustu þrem deildarleikjum sínum í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 3-1 tap gegn Eupen í kvöld.

Rúnar stóð vaktina í marki Leuven í kvöld, en það voru heimamenn í Eupen sem tóku forystuna strax á elleftu mínútu með marki frá Gary Magnee.

Mathieu Maertens jafnaði metin fyrir Leuven eftir hálftíma leik og staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Isaac Nuhu og Smail Prevljak sáu um markaskorun heimamanna í síðari hálfleik og tryggðu Eupen þar með 3-1 sigur. 

Rúnar og félagar sitja nú í tólfta sæti deildarinnar með 37 stig eftir 29 leiki, sex stigum meira en Eupen sem situr þremur sætum neðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×