Innlent

Þyrlan og varð­skipið Þór kölluð út til að­stoðar veikum sjó­manni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Skipverjinn hýfður um borð í þyrluna.
Skipverjinn hýfður um borð í þyrluna. Landhelgisgæslan

Landhelgisgæsla Íslands var í dag kölluð út til aðstoðar grænlensku fiskiskipi, sem var á veiðum djúpt vestur af Ísafjarðardjúpi, vegna veikinda hjá skipverja um borð. Bæði varðskip Gæslunnar og þyrla hennar voru kölluð út.

Skipstjóri fiskveiðiskipsins hafði í morgun samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð vegna veikinda skipverja um borð. Varðskipið Þór var í grenndinni og hélt þegar á staðinn. Þetta segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 

Sjúkraflutningamenn úr áhöfn Þórs fóru frá varðskipinu á léttbát og sóttu sjúklinginn um borð í fiskveiðiskipið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis kölluð út en hugað var að sjúklingnum um borð í varðskipinu ar til þyrlan kom og sótti manninn. 

Áhafnarmeðlimir Þórs leggja af stað til að sækja skipverjann.Landhelgisgæslan

Fram kemur í tilkynningunni að hann hafi verið hífður um borð í þyrluna síðdegis í dag og flogið með hann til Reykjavíkur þar sem honum var komið undir læknishendur. Um borð í varðskipum Landhelgisgæslunnar séu að jafnaði tveir sjúkraflutningamenn sem hafi í þessu tilfelli getað sinnt manninum þar til Þyrlan kom á vettvang. 

Þá segir að samvinna þyrlusveitarinnar og áhafnar varðskipsins hafi gengið afar vel en þetta sé í annað sinn á sólarhring sem bæði þyrla og varðskip eru kölluð til aðstoðar á þessum slóðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×