Grænland

Grænland

Höfuðborg: Nuuk. Mannfjöldi: 56 þúsund. Flatarmál: 2.166.000 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Funduðu enn og aftur um Græn­land

Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur hittust í gær í Washington DC á leynilegum samningafundi um Grænland og samskipti ríkjanna en samkvæmt danska ríkisútvarpinu er um að ræða enn einn fundinn á þessu ári þar sem fulltrúarnir hittast til að ræða málefni landsins.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll

Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála.

Erlent
Fréttamynd

Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Ís­lands

Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land, Græn­land og Fær­eyjar saman hefðu sterka samnings­stöðu

Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann.

Innlent
Fréttamynd

„Leyni­leg á­róðurs­her­ferð“ fyrir opnum tjöldum

Þrír Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, voru í fyrra sagðir undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Voru þeir sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni, eins og Trump hefur ítrekað talað um.

Erlent
Fréttamynd

Græn­lendingar gætu verið í lykil­stöðu

Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan.

Innlent
Fréttamynd

Hinir treystu sér ekki en Ís­lendingarnir flugu

Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn.

Innlent
Fréttamynd

Til­búnir til að sprengja flug­brautir á Græn­landi

Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.

Erlent
Fréttamynd

Vildu helst Asíu­búa í flug til Græn­lands

Íslensk flugfélög hófu snemma flug til Grænlands. Fyrir 1950 voru bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir farin að sinna þar ýmsum verkefnum. Flugfélag Íslands, síðar Flugleiðir og nú Icelandair, hefur lengst af verið umvifamest íslenskra félaga í Grænlandsflugi.

Innlent
Fréttamynd

Gestir geti spókað sig í þjóð­búningi á samstöðufundi

Grænlandsvinafélagið Kalak og aðrir Grænlandsvinir standa fyrir samstöðufundi í Norræna húsinu í dag. Þar verða ræðuhöld, grænlenskt listafólk sýnir muni sína, tónlistarfólk stígur á stokk og gestir munu meðal annars geta spókað sig í grænlenskum þjóðbúningi.

Innlent
Fréttamynd

Kvarnast upp úr græn­lensku lands­stjórninni

Siumut-flokkurinn er hættur þátttöku í landsstjórn Grænlands vegna ágreinings við samstarfsflokkanna sem tengast yfirvofandi þingkosningum í Danmörku. Vivian Motzfeldt sem mikið hefur mætt á sem utanríkisráðherra undanfarið hverfur þannig úr ríkisstjórnin.

Erlent
Fréttamynd

Fjár­festar taka vel í nýja af­komu­spá Amaroq sem er um­fram væntingar

Miðað við núverandi heimsmarkaðsverð á gulli og helstu forsendur að baki nýrri afkomuspá Amaroq fyrir árið 2026 er útlit fyrir að rekstrarhagnaður auðlindafélagsins geti orðið eilítið meiri en síðustu spár greinenda hafa gert ráð fyrir. Hlutabréfaverðið hefur rokið upp eftir að félagið opinberaði nýjar áætlanir sínar. 

Innherji
Fréttamynd

Segist ætla senda spítalaskip til Græn­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu.

Erlent