Innlent

Sauð upp úr á Al­þingi: „Ég hef sjaldan séð þing­mann jafn æstan“

Viktor Örn Ásgeirsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Lilja beindi spjótum sínum að Þorgerði Katrínu formanni Viðreisnar.
Lilja beindi spjótum sínum að Þorgerði Katrínu formanni Viðreisnar. Vísir/Vilhelm

Það sauð upp úr á Alþingi nú síðdegis undir liðnum fundarstjórn forseta. Forsaga málsins er sú að Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, spurði Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptamálaráðherra, hvort hún hygðist hækka veiðigjöld í ljósi þess að þingmeirihluti væri fyrir málinu og það óháð ríkisstjórnarvilja.

Lilja svaraði því til að það myndi ekki koma á óvart - þótt ríkisstjórnin myndi koma á óvart - en Sigmari þótti þessi svör helst til of loðin og spurði hæstvirtan ráðherra að nýju. Í svörum sínum beindi hún spjótum sínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar þegar hlátrasköll heyrðust í þingsal.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar tók svarinu óstinnt upp og steig í pontu til að gera athugasemd við framgöngu ráðherra. Lilja brást að nýju við þessum orðum Hönnu Katrínar og sagðist fullviss um að andúðin væri í hennar garð en ekki öfugt og rauk út úr þingsal að svarinu loknu.

Lilja sagði meðal annars: „Ég held hins vegar að þessi persónulega óvild sé mun fremur hjá þingflokki Viðreisnar í garð ráðherrans. Ég hef bara sjaldan séð háttvirtan þingmann jafnæsta þegar hún kemur hingað í pontu.“

Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata velti því þá upp hvort þingmenn væru á skólaþingi.

Í myndbandinu er aðeins stiklað á stóru; samskiptum Lilju og Hönnu Katrínar, en umræðurnar á Alþingi voru töluvert lengri.

Hægt er að hlusta á umræðurnar HÉR en þær hefjast þegar 1 klukkutími og 20 mínútur eru liðnar af myndbandinu.

Uppfært 21:22: Upphaflega stóð að Lilja hafi rokið úr þingsal en Hafþór Eide Hafþórsson aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur segir hana ekki hafa rokið af þingfundinum: „Það var ekkert fát eða pat á henni. Hún þurfti ekki að vera þarna, fyrirspurnartíminn var búinn og síðan biðu hennar aðrir fundir í ráðuneytinu við Skúlagötu þá einfaldlega fór hún. Alveg pollróleg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×