Ætlunin er að vera eins pirrandi og hægt er Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. mars 2022 18:30 Jürgen Klopp segir að Liverpool sé að spila hvern úrslitaleikinn á fætur öðrum um þessar mundir. EPA-EFE/TIM KEETON Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að liðið ætli sér að vera „eins pirrandi og hægt er“ í baráttu sinni við Manchester City um enska deildarmeistaratitilinn.
Liverpool er nú fjórum stigum á eftir City eftir að þeir síðarnefndu gerðu markalaust jafntefli gegn Crystal Palace í gær. Þá á Liverpool einn leik til góða á City og liðin eiga einnig eftir að mætast innbyrðis áður en tímabilinu lýkur. Liverpool mætir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld og takist liðinu að vinna þann leik er munurinn á Liverpool og City kominn niður í aðeins eitt stig. „Við ætlum okkur að setja pressu á City,“ sagði Klopp á blaðamannafundi í dag. „Ætlunin er að vera eins pirrandi og hægt er. Við verðum að vinna okkar leiki.“ 🗣 "We keep being as annoying as possible."Jurgen Klopp is asked whether they will push Man City all the way in the title race after 8 wins in a row pic.twitter.com/v77gvhgm0u— Football Daily (@footballdaily) March 15, 2022 „Þetta er hver úrslitaleikurinn á fætur öðrum sem við erum að spila. Við erum ekki með tíu stiga forskot þegar það eru tíu leikir eftir. Þetta er þarna fyrir framan okkur og við verðum að ráðast á það, elta það, ætla okkur það. Það er eini möguleikinn sem við höfum.“ Eins og áður segir þá sækir Liverpool Arsenal heim annað kvöld. Liverpool hefur unnið seinustu átta leiki sína í ensku úrvalsdeildinni, en Arsenal hefur einnig verið á góðu skriði og unnið seinustu fimm leiki sína.
Enski boltinn Mest lesið Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sport „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Enski boltinn Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira