Ítalskir sóðar: Skildu sígarettustubba, matarleifar og flöskur eftir í klefanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. mars 2022 10:32 Eins og sjá má var umgengni ítalska liðsins um búningsklefann á vellinum í Palermo ekki til fyrirmyndar. Leonardo Bonucci hefur beðist afsökunar á því hvernig ítalska landsliðið skildi við búningsklefa sinn eftir tapið fyrir Norður-Makedóníu, 0-1, í umspili um sæti á HM í Katar.
Evrópumeistararnir töpuðu afar óvænt fyrir Norður-Makedóníumönnum á fimmtudaginn og verða þar af leiðandi ekki með á öðru heimsmeistaramótinu í röð. Norður-Makedónía mætir Portúgal í úrslitaleik um sæti á HM í kvöld. Það vantaði ekki bara ýmislegt upp á inni á vellinum hjá Ítölum heldur einnig þegar kom að umgengni um klefann þeirra á Stadio Renzo Barbera í Palermo. Myndir úr klefa ítalska liðsins rötuðu á samfélagsmiðla og óhætt er að segja að sjónin hafi ekki verið fögur. Allar ruslatunnur voru yfirfullar og sígarettustubbar, matarafgangar og flöskur lágu á víð og dreif um klefann. „Þetta voru stór mistök. Næst vöndum við okkur betur. Við vorum mjög vonsviknir og héldum að svona smáatriði skiptu stundum ekki máli. Við biðjumst afsökunar og gerum betur í næstu leikjum,“ sagði Bonucci. Ítalska knattspyrnusambandið hefur einnig beðið Palermo afsökunar á umgengni liðsins. Ítalska liðið mætir því tyrkneska í vináttulandsleik í Konya í Tyrklandi í kvöld.
HM 2022 í Katar Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið María kom sænsku meisturunum í bobba en þær björguðu sér Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Diljá þurfti aðeins þrjár mínútur til að leggja upp mark Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Sjá meira