Kjörstjórnir í uppnámi vegna hertra hæfisreglna Jakob Bjarnar skrifar 31. mars 2022 11:59 Óðinn Gunnar Óðinsson, skrifstofustjóri Múlaþings, telur að í stefni veruleg vandræði víða með að skipa í kjörnefndir eftir að strangari lög tóku gildi um hæfi. vísir/vilhelm/austurfrétt Um þriðjungur þeirra sem skipa áttu kjörstjórnir í Múlaþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar eru bullandi vanhæfir samkvæmt nýjum kosningalögum.
Austurfrétt greindi frá þessu í vikunni en um síðustu áramót tóku ný kosningalög gildi. Þá voru soðnar saman í eitt lög um kosningar til sveitastjórna, Alþingis og svo forsetakosningarnar en kjörstjórnir voru skipaðar áður en þær tóku gildi. Í kosningalögunum, 18. grein þar sem kveður á um hæfi kjörstjórnarmanna segir að fulltrúi í kjörstjórn teljist vanhæfur og beri að víkja sæti ef ... maki hans, fyrrverandi maki sambúðarmaki, fyrrverandi sambúðarmaki eða einstaklingur skyldur eða mægður honum í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti vegna ættleiðingar er á framboðslistar. Eisn og segir í bæði kosningalögum og stjórnsýslulögum. Þetta eru talsvert strangari reglur en áður voru í gildi. Höfuðborgarsvæðið mun lenda í klandri Óðinn Gunnar Óðinsson er skrifstofustjóri Múlaþings og hann segir í samtali við Vísi þetta stefna í vandræði víða um land og ekki síst í litlum samfélögum. „Þetta er víða snúið og maður sér það í litlum samfélagögum að þurrkast gömlu kjörstjórnirnar nánast út. Þessi hæfisregla. sem er ströng,“ segir Óðinn Gunnar og dregur ekki úr því að hún sé góð og gild. En menn eigi eftir að reka sig á. „Til dæmis þegar þeir átta sig á þessu á höfuðborgarsvæðinu þar sem eru ég veit ekki hvað margar kjördeildir eru. Það eru tólf hundruð manns á bak við hverja kjördeild, mörg hundruð manns í kjörstjórnum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta á eftir að koma á daginn, menn eiga eftir að sjá þetta allstaðar á landinu. Hér erum við með sex kjörstjórnir.“ Óðinn Gunnar er menntaður mannfræðingur og honum þykir þetta áhugavert út frá því sjónarhorni; að erfitt geti reynst að mæta mikilvægum hæfisreglum í litlum samfélögum þar sem allir eru tengdir þvers og kruss og alla veganna.austurfrétt Óðinn Gunnar er menntaður mannfræðingur og honum þykir þetta áhugavert út frá því sjónarhorni jafnframt; að erfitt geti reynst að mæta mikilvægum hæfisreglum í litlum samfélögum þar sem allir eru tengdir þvers og kruss og alla veganna. „Já, þetta leggst í ættir gamlar á litlu stöðum. Sumar ættir eiga ríka hefð að vilja hafa fólk í framvarðasveitum. Allt í einu verða menn vanhæfir alveg niður úr. Já, þetta setur menn í vanda.“ Þegar hjónin á Teigaseli björguðu Jökuldal Óðinn Gunnar segir að snúið geti reynst að finna fólk í kjörstjórnirnar. Þeir sem ætli á að gefa sig í kjörstjórn þurfi nú að þylja hæfisregluna og með allt sem þar er tíundað á bak við eyrað fara yfir framboðslistana og spyrja sig hvort þau séu tengd einhverjum sem á lista? „Þeir koma ekki fram formlega fyrr en 8. apríl og þá geta menn farið að bera sig saman við þá; bíddu, er ég ekki skyldur þessum.“ Þó horfi til vandræða víða um hinar dreifðari byggðir er það ekki svo að höfuðborgarsvæðið sleppi ódýrt frá fyrirsjáanlegri klemmu sem strangar reglur um hæfi kjörnefnda kveða á um.Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Á Austurlandi gæti þetta reynst sérlega snúið en svo dæmi sé tekið af fullkomnu handahófi má segja að þegar hjónin Margrét Ingibjörg Stefánsdóttir og Sigurður Þorsteinsson fluttu að Teigaseli á Jökuldal á framanverðri síðustu öld hafi þau bjargað byggð í Dalnum. Þau voru barnmörg og giftust dætur þeirra á bæi þar um allan dal. Ættartengslin eru þannig og geta verið hlutfallslega býsna umfangsmikil. Annar hver maður skyldur á Austurlandi Óðinn Gunnar er kannski ekki til í að kvitta uppá það fyrirvaralaust að annar hver maður sé skyldur á Austurlandi, eins og blaðamaður vill halda fram fjálglega, en það geti látið nærri. Eins og fram kemur í Austurfrétt eru fimm kjördeildir í Múlaþingi; tvær á Fljótsdalshéraði, ein á Borgarfirði, ein á Djúpavogi og sú þriðja á Seyðisfirði til viðbótar við yfirkjörstjórnina. „Í hverri þeirra sitja sex einstaklingar, þrír aðal og þrír til vara. Alls eru því 42 einstaklingar í kjörstjórnum Múlaþings. Fjögur framboð hafa birt lista sína fyrir kosningarnar í vor. Þegar er orðið ljóst að rúmur þriðjungur þeirra fulltrúa sem sitja í kjörstjórnunum telst vanhæfur, en búist er við að fimmti listinn bætist við. Þá er ljóst að tveir af sex fulltrúum í yfirkjörstjórn teljast vanhæfir,“ segir í Austurfrétt.
Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Sveitarstjórnarkosningar 2022 Múlaþing Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira