Fótbolti

Jón Daði skoraði tvö í öruggum sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson reimaði á sig skotskóna í dag.
Jón Daði Böðvarsson reimaði á sig skotskóna í dag. Twitter@OfficialBWFC

Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson var á skotskónum er Bolton tók á móti Accrington Stanley í ensku C-deildinni í fótbolta í dag. Jón Daði skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Bolton.

Heimamenn í Bolton náðu forystunni stuttu fyrir hálfleik áður en gestirnir jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik.

Jón Daði kom heimamönnum svo yfir á nýjan leik þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka, áður en Rosaire Longelo fékk að líta beint rautt spjald í liði gestanna rúmum tíu mínútum síðar.

Heimamenn nýttu sér liðsmuninn og Jón Daði bætti þriðja marki liðsins við á lokamínútu leiksins og tryggði Bolton þar með 3-1 sigur.

Jón Daði og félagar sitja nú í tíunda sæti deildarinnar með 67 stig þegar tvær umerðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×