Innlent

Dóms­­mála­ráð­herra fékk far með þyrlu Land­helgis­gæslunnar

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Jón Gunnarsson telur ekki athugavert að hafa fengið far með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Jón Gunnarsson telur ekki athugavert að hafa fengið far með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá Bíldudal yfir í Stykkishólm í gær. Hann kveðst hafa verið að heimækja embætti dómsmálaráðuneytis á Vestfjörðum og farið yfir á Snæfellsnes í sömu erindagjörðum.

Stundin greinir frá því að Jón hafi staðfest skutlið en við miðilinn sagði dómsmálaráðherra: „Já, ég notaði tækifærið og tók þátt í æfingu sem þeir voru að fara í og þeir skutluðu okkur í leiðinni hér yfir í Breiðafjörð.“

Hann taldi ekkert ó­eðli­legt við skut­lið og Ás­geir Er­lends­son upp­lýsinga­full­trúi Land­helgis­gæslunnar tók í sama streng í sam­tali við Stundina.

Ásgeir segir í samtali við Vísi að um hafi verið að ræða fyrir fram skipulagt löggæslu- og eftirlitsflug þar sem ráðherrann kynnti sér starfsemi þyrlusveitar. Þá hafi Jón tekið þátt í hífingaræfingu við Höskuldey þar sem honum var slakað niður og hífður aftur upp í þyrluna.

„Það er bæði jákvætt og mikilvægt að ráðherra málaflokksins kynnist störfum Landhelgisgæslunnar með eigin augum,“ segir hann.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þáverandi dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu gæslunnar fyrir um tveimur árum síðan og málið vakti mikla athygli. Hún baðst síðar afsökunar á þessum ferðum sínum og útskýrði að Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar hafi lagt þetta til.

Ríkisendurskoðun gerði alvarlegar athugasemdir við tilhögunina fyrr á þessu ári en í úttekt stofnunarinnar sagði meðal annars: „Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar.“

Ríkisendurskoðun óskaði einnig eftir því að dómsmálaráðuneytið gerði grein fyrir því hvort endurskoðun á verklagi við ferðir ráðherra í boði Landhelgisgæslunnar en Áslaug Arna hafði í tengslum við málið gefið til kynna að vert væri að ráðast í slíkt. Ráðuneytið afhenti Ríkisendurskoðun drög að reglum sem unnið sem eiga að koma í veg fyrir að vafi leiki á réttmætri nýtingu loft- og sjófara stofnunarinnar við æfingar og önnur verkefni sem ekki eru sérstaklega talin upp í lögum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×