Fótbolti

Þriðja tap Birkis og félaga í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Birkir Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu.
Birkir Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu. EPA-EFE/Jakub Kaczmarczyk

Birkir Bjarnason og félagar hans í Adana Demirspor töpuðu sínum þriðja deildarleik í röð er liðið heimsótti Girensunspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 2-0, heimamönnum í vil.

Eftir gott gengi seinustu vikur er Birki og félögu farið að fatast flugið og líkurnar á Evrópusæti verða minni og minni með hverri vikunni.

Birkir hóf leik á varamannabekk Adana Demirspor, en kom inn af bekknum í hálfleik. Þá höfðu heimamenn þegar náð forystunni og þeir tvöfölduðu hana snemma í síðari hálfleik.

Niðurstaðan varð því 2-0 sigur Girensunspor sem situr í 14. sæti deildarinnar með 43 stig eftir 35 leiki. Birkir og félagar sitja í fimmta sæti deildarinnar með 52 stig, fimm stigum á eftir Basaksehir sem situr í fjórða og seinasta Evrópusætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×