Innlent

Leiðsögumenn hjá FÍ hætta í skugga ásakana um einelti

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ferðafélag Íslands sér um rekstur á fjallaskálum um land allt, meðal annars skálann í Hvanngili við Fjallabak.
Ferðafélag Íslands sér um rekstur á fjallaskálum um land allt, meðal annars skálann í Hvanngili við Fjallabak. Vísir/Vilhelm

Tveir leiðsögumenn hafa sagt sig úr Ferðafélagi Íslands vegna eineltis sem þeir segjast hafa orðið fyrir innan félagsins. Framkvæmdastjórinn segir málið vera í ferli hjá óháðri sálfræðistofu.

Í janúar á þessu ári barst stjórnendum Ferðafélags Íslands fyrst fregnir af meintu einelti innan félagsins. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, staðfestir við fréttastofu að í kjölfarið hafi tveir einstaklingar sagt sig úr félaginu. Málið var sent til lögfræðistofu sem mat það sem svo að félagið þyrfti ekki að aðhafast í málinu.

Páll segir að í kjölfar ályktunar frá lögfræðistofunni hafi hluti málsaðila lýst yfir óánægju með niðurstöðuna. Því var málið sent til sálfræðistofu sem rannsakar málið nú.

Páll vildi ekki ræða málið nánar og segir að það sé í ferli.

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.Ferðafélag Íslands

Lygasögum um einkalíf fararstjóra dreift

Aðilar innan félagsins hafa í samtali við fréttastofu lýst því að ákveðinn hópur leiðsögumanna dreifi lygasögum um aðra kollega til viðskiptavina, annarra leiðsögumanna og fararstjóra hjá Ferðafélagi Íslands. Lygasögurnar tengist einkalífi og fagmennsku leiðsögumanna. Áhrifin á umrædda fararstjóra séu þau að tekjur leiðsögumannanna minnki enda fækki í kúnnahópnum. 

Þá hafi myndir úr ferðum með ákveðnum leiðsögumönnum verið útilokaðar af samfélagsmiðlum félagsins. Það hafi fyrst uppgötvast þegar viðskiptavinir fóru að spyrjast fyrir hvers vegna myndir af þeim væru aldrei inni á miðlunum.

Vænta má niðurstöðu úr rannsókn sálfræðistofunnar um miðjan maí.

Ferðafélag Íslands er eitt stærsta félag landsins með um níu þúsund meðlimi. Félagið sér meðal annars um rekstur á fjallaskálum, merkingu gönguleiða og skipulagningu á ferðum um allt land. Leiðsögumenn og fararstjórar eru verktakar hjá félaginu. Orðspor þeirra hefur bein áhrif á tekjur enda þarf lágmarksfjölda í ferðir til að þær verði að veruleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×