Aðeins tvö lið hafa beðið lengur eftir úrslitaeinvíginu en Valsmenn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2022 15:01 Valsmenn eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar. Vísir/Hulda Margrét Valsmenn spila í kvöld í fyrsta sinn í ellefu daga þegar þeir taka á móti Eyjamönnum á Hlíðarenda í fyrsta leiknum í úrslitaeinvígi Olís deildar karla. Valsliðið sópaði Selfyssingum út úr undanúrslitunum en ÍBV þurfti fjóra leiki á móti Haukum. ÍBV kláraði sitt einvígi 10. maí eða tveimur dögum á eftir Valsmönnum. Það hafa aðeins tvö lið þurft að bíða lengur eftir úrslitaeinvíginu en Valsmenn frá því að úrslitakeppnin var tekin upp 1992. Haukaliðið frá 2015 beið lengst eða í fimmtán daga vorið 2015. Haukarnir sópuðu þá út Valsmönnum 3-0 á sama tíma og undanúrslitaeinvígi Aftureldingar og ÍR fór alla leið í oddaleik. Mosfellingar unnu oddaleikinn en þurftu engu að síður að bíða í tíu daga eftir úrslitaeinvíginu sem er nú fjórða lengsta biðin. Haukarnir unnu úrslitaeinvígið 3-0. Síðasta lið til að bíða í meira en tíu daga eftir úrslitaeinvíginu var lið FH vorið 2017. FH-ingar biðu þá í þrettán daga eftir að hafa slegið Aftureldingu 3-0 út í undanúrslitum. Valsmenn unnu líka sitt einvígi 3-0 en voru að keppa í undanúrslitum Evrópukeppninnar á sama tíma og því tók undirúrslitaeinvígi Vals og Fram fimmtán daga þrátt fyrir að það endaði 3-0. Leikur Vals og ÍBV hefst klukkan 19.30 í Origo höllinni á Hlíðarenda en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 18.50. Lengsta bið eftir lokaúrslitum: (Dagar á milli undanúrslita og lokaúrslita 1992-2022) 15 dagar Haukar 2015 (21. apríl til 6. maí) 13 dagar FH 2017 (27. apríl til 10. maí) 11 dagar Valur 2022 (8. maí til 19. maí) 10 dagar Afturelding 2015 (26. apríl til 6. maí) 10 dagar Haukar 1994 (26. apríl til 6. maí) Olís-deild karla Valur ÍBV Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira
Valsliðið sópaði Selfyssingum út úr undanúrslitunum en ÍBV þurfti fjóra leiki á móti Haukum. ÍBV kláraði sitt einvígi 10. maí eða tveimur dögum á eftir Valsmönnum. Það hafa aðeins tvö lið þurft að bíða lengur eftir úrslitaeinvíginu en Valsmenn frá því að úrslitakeppnin var tekin upp 1992. Haukaliðið frá 2015 beið lengst eða í fimmtán daga vorið 2015. Haukarnir sópuðu þá út Valsmönnum 3-0 á sama tíma og undanúrslitaeinvígi Aftureldingar og ÍR fór alla leið í oddaleik. Mosfellingar unnu oddaleikinn en þurftu engu að síður að bíða í tíu daga eftir úrslitaeinvíginu sem er nú fjórða lengsta biðin. Haukarnir unnu úrslitaeinvígið 3-0. Síðasta lið til að bíða í meira en tíu daga eftir úrslitaeinvíginu var lið FH vorið 2017. FH-ingar biðu þá í þrettán daga eftir að hafa slegið Aftureldingu 3-0 út í undanúrslitum. Valsmenn unnu líka sitt einvígi 3-0 en voru að keppa í undanúrslitum Evrópukeppninnar á sama tíma og því tók undirúrslitaeinvígi Vals og Fram fimmtán daga þrátt fyrir að það endaði 3-0. Leikur Vals og ÍBV hefst klukkan 19.30 í Origo höllinni á Hlíðarenda en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 18.50. Lengsta bið eftir lokaúrslitum: (Dagar á milli undanúrslita og lokaúrslita 1992-2022) 15 dagar Haukar 2015 (21. apríl til 6. maí) 13 dagar FH 2017 (27. apríl til 10. maí) 11 dagar Valur 2022 (8. maí til 19. maí) 10 dagar Afturelding 2015 (26. apríl til 6. maí) 10 dagar Haukar 1994 (26. apríl til 6. maí)
Lengsta bið eftir lokaúrslitum: (Dagar á milli undanúrslita og lokaúrslita 1992-2022) 15 dagar Haukar 2015 (21. apríl til 6. maí) 13 dagar FH 2017 (27. apríl til 10. maí) 11 dagar Valur 2022 (8. maí til 19. maí) 10 dagar Afturelding 2015 (26. apríl til 6. maí) 10 dagar Haukar 1994 (26. apríl til 6. maí)
Olís-deild karla Valur ÍBV Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira