Fótbolti

Með slitið krossband og þarf að fara í að­gerð

Andri Broddason skrifar
Khvicha Kvaratskhelia gat ekki stigið í fótinn þegar hann gekk af vellinum.
Khvicha Kvaratskhelia gat ekki stigið í fótinn þegar hann gekk af vellinum. Franco Arland/Getty Images

Evrópumeistarar PSG tóku á móti Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gær. PSG náði að vinna leikinn 4-2 en liðið gerði það ekki áfallalaust. Khvicha Kvaratskhelia, leikmaður PSG, meiddist eftir um klukkutíma leik og þurfti að fara af velli.

Kvaratskhelia meiddist eftir samstuð við Xavi Espart, varnarmann Barcelona, og virtist leikmaður PSG vera sárþjáður. Hann fór af velli en átti erfitt með að stíga í fótinn og fór í myndatöku snemma daginn eftir.

Þar var staðfest það sem þjálfarar PSG óttuðust, að Kvaratskhelia hafi slitið krossband og þarf hann að fara í aðgerð. Samkvæmt franska miðlinum L'Equipe mun hann vera frá í sex mánuði.

Þetta er áfall fyrir PSG þar sem Kvaratskhelia er einn af miðpunktum í sókn PSG. Hann hefur byrjað fimm leiki fyrir PSG það sem af er tímabils og skorað eitt mark ásamt því að hafa gefið eina stoðsendingu.

Ousmane Dembele er einnig meiddur og verður frá í nokkrar vikur og því er sókn PSG löskuð. Hann fór af velli gegn Barcelona eftir að hafa aðeins spilað í 20 mínútur. Einnig fór varnarmaðurinn Marquinhos af velli og er ekki búist við að hann spili heldur næstu vikurnar.

PSG gæti því verið í leikmannavandræðum og þarf félagið mögulega að finna fleiri leikmenn í félagsskiptaglugganum í janúar.

Fréttin var uppfærð klukkan 10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×