„Höfðum feimið fólk í huga þegar við vorum að semja sýninguna“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 21. maí 2022 09:00 Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, Eygló Höskuldsdóttir Viborg og Laufey Haraldsdóttir standa að sýningunni Sjáið mig. Leifur Wilberg Fimmtudaginn 26. maí frumsýnir leikhópurinn Slembilukka leiksýninguna „Sjáið mig“ í Miðbæjarskólanum. Höfundarnir eru þær Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir og Laufey Haraldsdóttir en Eygló Höskuldsdóttir Viborg er tónskáld sýningarinnar ásamt því að koma fram í verkinu. Blaðamaður tók á þeim púlsinn og fékk að heyra nánar frá sýningunni.
Sýningin er óhefðbundin í sniði, en hún etur saman leikhúsi, keppnisíþróttum og borðspilum. Áhorfendur keppast svo um að skara fram úr á hinum ýmsu sviðum lífsins. View this post on Instagram A post shared by Slembilukka (@slembilukka) Bryndís Ósk, Laufey og Eygló hafa komið víða að og tekið að sér fjölbreytt verkefni. Bryndís var meðal annars tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir búninga í óperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan og Laufey var ráðin sem spurningahöfundur og dómari í Gettu betur. Eygló samdi til dæmis útvarpsleikrit fyrir Rás 1 fyrr á árinu sem heitir Fjöldasamkoman á Gjögri og er með meistaragráðu í concert composition frá New York University. Bryndís Ósk Þ. IngvarsdóttirLeifur Wilberg Loddaralíðan og svikara heilkenni Þær fengu einnig inni í Borgarleikhúsinu til að gera sýninguna Á vísum stað. Þetta er því sérstök staða sem þær eru í - að búa til sýningu um vantrú á sjálfum eftir mikinn árangur undanfarið leikár. Í verkinu velta þær upp spurningum á borð við „Getur verið að við, og fólk yfirleitt, sé hreinlega ekki fært um að mæla eigin velgengni eða virði?“ „Við sóttum innblástur í hið svokallaða svikara heilkenni (e. impostor syndrome) sem hefur líka verið þýtt sem loddaralíðan,“ segja þær og bæta við: „Við fengum innblástur vegna þess að okkur leið eins og við værum stanslaust að keppa við jafningja okkar. Okkur datt í hug að svikara heilkennið hefði kannski eitthvað með það að gera og langaði að rannsaka það nánar.“ Sýningin hefur verið ansi lengi í bígerð og hefur ýmislegt komið upp á. „Við skrifuðum tillöguna að sýningunni fyrst árið 2020 en hún hefur þurft að bíða, bæði vegna Covid og vegna þess að við vorum uppteknar í öðrum verkefnum bæði saman og í sitt hvoru lagi. Leikhópurinn setti upp sýninguna Á vísum stað í Borgarleikhúsinu í vetur og Sjáið mig þurfti að bíða á meðan.“ Laufey Haraldsdóttir.Leifur Wilberg Erfitt að mæla velgengni Undanfarin misseri hafa þær kynnt sér mikið um hina fyrrnefndu loddaralíðan. „Samkvæmt rannsóknum er loddaralíðan eitthvað sem um 70% mannkyns upplifir á einhverjum tímapunkti. Það gæti vel verið að hlutfallið sé hærra hjá listamönnum því það er erfiðara að mæla velgengni á því sviði. Við höldum að loddaralíðan stafi að stórum hluta til af samanburði við aðra, það er auðvitað svo auðvelt að vera stanslaust að bera sig saman við annað fólk á þessari samfélagsmiðla öld.“ Eygló Höskuldsdóttir Viborg.Leifur Wilberg Forvitni og þátttaka gesta Lifuð reynsla þeirra og upplifun kveikti á forvitni, sem þær segjast gjarnan reyna að svala. „Forvitni er það sem veitir okkur innblástur. Við viljum gera sýningar um það sem við erum forvitnar að vita meira um.“ View this post on Instagram A post shared by Slembilukka (@slembilukka) Sýningin verður frumsýnd 26. maí næstkomandi og verða einnig 28. maí og 1. Júní. Sýningarnar eru tvær á kvöldi, klukkan 17:30 og 20:00. „Þetta er þátttökusýning, sem þýðir að áhorfendur þurfa að taka þátt. Við vitum að sumir eru smeykir við það en fólk þarf ekkert að vera hrætt við okkur. Við höfðum feimið fólk í huga þegar við vorum að semja sýninguna,“ segja Bryndís, Eygló og Laufey að lokum.
Leikhús Menning Mest lesið Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Lífið „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Lífið „Sagði börnunum að vondur maður hefði meitt mömmu“ Áskorun Hundur í hjólastól í Sandgerði Lífið „Hvað er Gísli Marteinn gamall?“ Lífið Stuð og stemning á opnun Einars Fals í Þjóðminjasafninu Lífið „Það getur enginn sært þig án þíns samþykkis“ Lífið „Ég var kominn á þann stað að ég þorði ekki að vera með barnið mitt“ Lífið Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Menning Slasaðist við tökur í Bretlandi Lífið Fleiri fréttir Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira