Innlent

Hrafn gæðir sér á þresti fyrir framan Seðlabankann

Jakob Bjarnar skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði mögnuðu myndskeiði þar sem sjá má hrafn nokkurn háma í sig þröst. Krás á kaldri steypu.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði mögnuðu myndskeiði þar sem sjá má hrafn nokkurn háma í sig þröst. Krás á kaldri steypu. vísir/vilhelm/Ásgeir Jónsson

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði einstöku myndskeiði þar sem hrafn nokkur er að háma í sig þröst fyrir utan Seðlabankann.

„Og mér sýnist krummi bara býsna glaður með krás á kaldri steypu. Heillamerki hefði þetta einhvern tíma verið talið. Guð launar fyrir hrafninn stendur einhvers staðar,“ segir Ásgeir.

Þó ýmsir sjái nú vá standa fyrir dyrum vegna hækkandi verðbólgu, meiri en mælst hefur síðan 2010 og þá að hrafninn sé slíkur váboði telur seðlabankastjóri, sem er vel að sér um sögu, þjóðtrú og heiðinn sið, það af og frá. Hann segir þetta þvert á móti heillamerki.

„Ég er ekki farinn að fórna Óðni til þess að ná árangri gegn verðbólgu,“ segir Ásgeir kankvís í samtali við Vísi. En hvað veit maður?

„Hrafninn hefur mjög ríka skírskotun í íslenska þjóðtrú – það að fæða hrafna er heillamerki,“ segir Ásgeir sem les í þetta jákvæð teikn. Hann segir þetta beint úr heiðninni og því hafi Ásgeir fengið að kynnast þegar hann ólst upp fyrir vestan.

„Ég hef annars aldrei verið svona nálægt hrafni áður sem er í æti,“ segir Ásgeir sem gómaði hrafninn á mynd í morgun um klukkan 10:30.

Þrösturinn þessi syngur þá ei meir borgarbúum til ánægju og yndisauka. En Ásgeir bendir á að hrafninn sé fyrst og fremst hrææta og því allar líkur á því að þrösturinn hafi verið dauður áður en krummi náði að læsa sínum klóm í hann.

Ásgeir birti myndskeiðið á Facebook-síðu sinni og þar eru ýmsir að velta þýðingu þessa fyrir sér. Einn segir kaldhæðnislegt að ránfuglinn komist í veislu hjá Seðlabankanum og annar spyr hvort þetta sé nokkuð Þröstur Ólafsson hagfræðingur? En Þröstur sat níu ár í bankaráði Seðlabankans og var formaður þess 1994-99.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×