„Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Tómas Arnar Þorláksson og Telma Tómasson skrifa 2. nóvember 2026 14:30 Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar. vísir/aðsend/vilhelm „Nú virðist öldin vera önnur. Við erum húsnæðislausar. Ég var á fundi með Barna- og fjölskylduráði fyrir nokkrum vikum þar sem ég lagði þetta fram en engin svör hafa borist.“
Þetta segir í færslu Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sem birtist á Facebook-síðu úrræðisins fyrir hádegi. Þar kemur fram að nefndin hafi ekki getað sótt um þá styrki sem starfsemin reiðir sig á vegna húsnæðisskorts. Upphaflegt húsnæði hafi verið rifið og Hafnarfjarðarbær ekki útvegað nýtt húsnæði fyrir árið. Nefndin hafi til margra ára komið til móts við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur í aðdraganda jólanna svo að fólk geti átt gleðilega stund eða náð endum saman. Færsla Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar á Facebook.vísir/skjáskot Nefndin muni ekki geta rétt út hjálparhönd fyrir þessi jól að öllu óbreyttu. Ef það verður raunin verða rúmlega 400 manns af kærkominni aðstoð. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar hafi haft samband eftir að færslan var birt og sagt málið í skoðun. „Við erum komnar á þann stað að umsóknir um aðstoð fyrirtækja með matvörur eru svo til runnar út. Ég er miður mín yfir að við skulum vera í þessari stöðu þar sem nokkur hundruð fjölskyldur og einstaklingar treysta á okkur en ég, ásamt öðrum, hef reynt eftir fremsta megni að koma þessu í gang en boltinn er ekki lengur hjá okkur heldur bæjarstjórn Hafnarfjarðar.“ Síminn hringdi eftir færsluna Petrea Aðalheiður Ómarsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, segir í samtali við fréttastofu að Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði, hafi vakið athygli á stöðu nefndarinnar á fundi í byrjun október og ítrekað það síðan aftur 20. október. Málið hafi átt að vera tekið fyrir í síðustu viku en ekkert gerst. Síminn hafi loks hringt eftir að hún birti umrædda færslu. „Það á eitthvað að athuga málið. Húsnæði er þó ekki bara húsnæði. Það þarf húsnæði sem gefur þá tilfinningu að fólk sé velkomið þangað inn. Við þurfum húsnæði með góðu aðgengi. Ég fékk símtal frá Samfylkingunni í morgun og mér var lofað að það ætti að athuga þetta. Það er svolítið seint í rassinn gripið.“ Áður var nefndin til húsa í Kató sem var áður leikskóli en húsnæðið var síðan rifið niður. Á síðasta ári var nefndin til húsa á Strandgötunni í miðbæ Hafnarfjarðar. „Svona á eiginlega ekkert heima þar, það er ekki fyrir skjólstæðinga okkar að vera einhvers staðar í miðbænum. Við þurfum eitthvað gott húsnæði þar sem strætó gengur og fólk getur sótt til okkar hult.“ 400 manns sem stóla á þjónustuna Vegna skorts á húsnæði hefur ekki verið hægt að sækja um styrki hjá þeim fyrirtækjum og velunnurum sem styðja vanalega starfið. „Fullt af félagasamtökum hérna í Hafnarfirði hafa haldið okkur gangandi. Ég hef ekkert getað sótt um neina styrki. Það verður bara að koma í ljós hvernig úthlutunin í ár verður ef við fáum húsnæði.“ Hún segist auðvitað binda vonir við að allt fari á besta veg. „Það eru mörg hundruð fjölskyldur sem sækja til okkar í desember til að fá smá styrk fyrir jólin. Það voru hátt í 400 manns í fyrra sem voru hjá okkur. Þörfin er mjög mikil.“ Hún tekur fram að skjólstæðingum fjölgi á milli ára. „Það fjölgar í hópnum. Mikið af fólki sem er að missa vinnuna og annað og biður okkur um aðstoð.“
Hafnarfjörður Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Sjá meira