Innlent

Kalli 104 ára á Ísafirði stefnir á að verða 106 ára

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Karl eða Kalli eins og hann er alltaf kallaður er fæddur 14. maí 1918 og er því ný orðinn 104 ára. Hann er elstur íslenskra karlmanna og stefnir ótrauður á að verða 106 ára.
Karl eða Kalli eins og hann er alltaf kallaður er fæddur 14. maí 1918 og er því ný orðinn 104 ára. Hann er elstur íslenskra karlmanna og stefnir ótrauður á að verða 106 ára. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Karl Sigurðsson á Ísafirði er búin að setja sér það markmið að verða 106 ára en hann er elsti íslenski karlmaður landsins, 104 ára. Hann þakkar vatninu á Vestfjörðum hvað hann er ern og hress.

Karl eða Kalli eins og hann er alltaf kallaður er fæddur 14. maí 1918 og er því ný orðinn 104 ára. Það fer vel um hann á hjúkrunarheimili á Ísafirði þó sjónin og heyrnin sé farin að daprast. Kalli fer út að ganga á hverjum degi.

"Ég kem nú frá fátæku heimili. Það var alltaf nóg að borða en það var fiskur í hverri máltíð nema á sunnudögum, þá var kjöt. Ég var nú skipstjóri í 30 ár, alltaf með sama nafnið en þrír bátar. Það þekktu mig allir, sem Kalli á Mímir,“ segir hann og hlær.

En af hverju heldur þú að þú sért orðin svona aldraður, eru það genin eða?

„Það er vatnið, vatnið hérna á Vestfjörðum. Ef maður hefur gott vatn þá lengir það lífið. Þannig að við ættum að drekka miklu meira af vatni, en ekki mjólk, mjólkin er bara fyrir pelabörnin,“ segir Kalli.

En hvernig líst Kalla á nútíma þjóðfélag þar sem mikið snýst um snjalltæki og samfélagsmiðla?

„Ég hef aldrei eignast vasasíma, ég átti bara bílasíma á tímabili og svo náttúrulega í heimahúsi.“

En hvað heldur Kalli að hann verði gamall?

„Ég hugsa að ég eigi eftir tvö ár, ég verð þá 106 ára, það er hugsunin að ná þeim aldri,“ segir þessi aldni, hressi og skemmtilegi höfðingi á Ísafirði.

Kalli er alltaf brosasndi og hress. Hann þakkar vatninu á Vestfjörðum háan aldur sinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×