Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Jónas Þór Birgisson, lyfjafræðingur, skipar oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framboðslistinn var samþykktur einróma á fundi flokksins í gær. Innlent 26.2.2026 09:58
Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. Viðskipti innlent 26.2.2026 09:14
Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Tveir hafa tilkynnt Helga Jensson, lögreglustjóra á Vestfjörðum, til nefndar um eftirlit með lögreglu, NEL, vegna áreitni og ofbeldis sem hann á að hafa beitt á þorrablótinu Stútungi á Flateyri þann 14. febrúar. Dómsmálaráðuneytinu er kunnugt um málið samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 25.2.2026 12:01
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Viðreisn mun bjóða fram undir eigin merkjum í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi en ekki með Í-listanum líkt og undanfarin ár. Innlent 7. febrúar 2026 10:14
„Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs. Innlent 6. febrúar 2026 07:59
Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf aðildarflokka Í-listans í Ísafjarðarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur verið slitið. Þannig ekki útlit fyrir að boðið verði fram undir merkjum Í-listans í sveitarfélaginu í komandi kosningum en ástæðan er sú að ekki náist samstaða milli aðildarflokkanna um uppstillingu framboðslista né heldur að samræma ólíkar áherslur. Innlent 5. febrúar 2026 09:08
Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir það afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin. Hann gefur lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa sé að ræða. Innlent 30. janúar 2026 11:57
Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí. Innlent 29. janúar 2026 22:59
Fiskeldi til framtíðar Nýr grunnskóli á Bíldudal. Heimavöllur bikarmeistara Vestra. Vatnsveitur og fráveitur. Skólastofur og slökkvistöð. Nemendagarðar og göngustígar. Allt eru þetta dæmi um hvernig framlög fiskeldissjóðs hafa styrkt sveitarfélög á Vestfjörðum síðustu ár til uppbyggingar, aukið lífsgæði og styrkt innviði. Skoðun 26. janúar 2026 07:45
Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Vegagerðin hefur boðið út rekstur á áætlunarflugi til og frá Ísafirði. Tæpt ár er síðan forsvarsmenn Icelandair tilkynntu að félagið hyggðist hætta að fljúga til Vestfjarða. Innlent 24. janúar 2026 13:09
Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Áhöfnin á varðskipinu Þór var kölluð út í gær til að kanna aðstæður í fjörunni við Illdranga í Ísafjarðardjúpi en þar hafði dauðan búrhval rekið á land. Innlent 21. janúar 2026 15:42
Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista. Innlent 29. desember 2025 11:22
Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Engin guðþjónusta verður í boði í Mýrakirkju í dag vegna rafmagnsleysis í Dýrafirði. Presturinn segist ætla að nýta tækifærið og vera heima með börnunum á jóladag. Innlent 25. desember 2025 11:26
Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Foktjón varð á Ísafirði í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær, aðfangadag. Lögreglumenn á Ísafirði urðu varir við að nokkrir lausir munir höfðu fokið og að í tveimur tilvikum að minnsta kosti hafi orðið skemmdir á mannlausum bílum sem stóðu á bílastæði við Hafnarstræti á Ísafirði. Innlent 25. desember 2025 08:52
Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa slegið mann með glerflösku í höfuðið á skemmtistað á Ísafirði í apríl 2023. Innlent 23. desember 2025 11:08
Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Fjölskylda Gunnars Inga Hákonarsonar safnar nú fyrir hann og móður hans, Jónu B. Brynjarsdóttur, til að mæta miklum kostnaði vegna endurhæfingar Gunnars Inga. Gunnar Ingi og Jóna eru búsett á Ísafirði en dvelja Reykjavík svo Gunnar Ingi geti sinnt endurhæfingu á Grensás. Hann lenti í umferðarslysi í október þegar hann missti meðvitund undir stýri og bíllinn rann út í sjó. Innlent 16. desember 2025 21:52
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10
Ekið á barn á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum leitar upplýsinga eftir að ekið var á barn á Ísafirði eftir hádegi í dag. Barnið sem ekið var á er sagt vera á aldrinum sex til níu ára en barnið gekk af vettvangi eftir að hafa orðið fyrir ökutæki. Lögregla leitar að vitnum sem kynnu að hafa séð þegar ekið var á barnið og reynir að komast að því hvaða barn var þar á ferðinni. Innlent 25. nóvember 2025 14:46
Óttast hópuppsögn sem samsvarar sextán þúsund höfuðborgarbúum Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum. Ástæðan er fyrirhugað afnám línuívilnunar, rækjubóta og skerðinga á byggðakvóta. Innlent 24. nóvember 2025 22:13
Björk og Rosalía í hart við íslenska ríkið Tónlistarkonurnar Björk Guðmundsdóttir og Rosalía ætla í hart við íslenska ríkið vegna sjókvía í Ísafjarðardjúpi. Náttúruverndarsamtök Bjarkar standa að stefnu landeiganda við Snæfjallaströnd sem vill meina að sjókvíum hafi verið komið upp innan lóðarmarka hans, eða eins og samtökin orða það „hreinlega upp í fjöru til sín. Innlent 22. nóvember 2025 12:18
Pavel í baðstofubransann Körfuboltakappinn Pavel Ermolinskij hefur til skoðunar að setja upp potta og gufu á vannýttri lóð á Þingeyri. Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar tekur vel í erindið en bendir á að lóðin hafi áður hýst olíutanka. Pavel segir að um sé að ræða hugmynd á algjöru frumstigi. Viðskipti innlent 17. nóvember 2025 10:25
Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Fulltrúar verslunar og þjónustu hvetja stjórnvöld til að grípa til ráðstafana til að tryggja rekstur kjörbúða í minni bæjarstæðum á landsbyggðinni. Um félagslegt byggðarmál sé að ræða. Án þessar grunnþjónustu sé hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki. Innlent 2. nóvember 2025 15:48