Keppti í 32 ára gömlum jakka af pabba sínum Telma Tómasson skrifar 6. júlí 2022 12:00 Anna Sigríður Erlendsdóttir er yngst allra keppenda á Landsmóti hestamanna. Kristín Sigurðardóttir Yngsti keppandinn á Landsmóti hestamanna, sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu, er á tíunda aldursári, eða því sem aldurstakmörk miða við á mótinu. Anna Sigríður Erlendsdóttir er yngst allra, eftir því sem fréttastofa kemst næst.
Anna segir að sér hafi gengið vel í forkeppni á sunnudag, jafnvel þótt hún hafi ekki komist áfram í milliriðil, og það hafi verið mjög gaman að keppa á landsmótinu. „Já, það var mjög skemmtilegt. Ég var á lánshryssu sem heitir Yldís frá Hafnarfirði,“ segir Anna Sigríður, sem klæddist 32 ára gömlum jakka af pabba sínum. „Þetta er örugglega heppnisjakki,“ samþykkir hún aðspurð. Hjarta foreldra og aðstandenda fer oft að slá örar þegar unga fólkið hleypir hestum sínum í braut, en það er atriði sem þeim er skylt að sýna. Anna Sigríður var þó hvergi bangin og segir skemmtilegt að fara hratt. „Hryssan mín var aðeins viljug og vildi elta hin hrossin þegar hleypt var á stökk, en mér tókst að snúa henni við og láta hana bíða þangað til röðin kom að okkur.“ Anna Sigríður keppti á hryssunni Yldísi.Kristín Sigurðardóttir „Verð vonandi alltaf í hestum“ Það er jafnan stór stund að koma fram á Landsmóti, en það krefst mikillar æfingar að verða góður í hestíþróttum. Anna Sigríður hefur verið dugleg að ríða út heima í Skarði í Landssveit þar sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni og var aðeins fimm ára þegar hún fór fyrst að fara ein á hestbak. Hún er því orðin býsna flink að stjórna hesti. „Vonandi verð ég alltaf í hestum,“ segir þessi knái ungi keppnisknapi, hress og kát. En keppni er eitt og frjáls reið annað og Anna Sigríður segir að jafnvel þótt það hafi verið upplifun að keppa á Landsmóti hlakkar hún mest til að fara á fjall í leitir í haust með ömmubróður sínum, hinum landsþekkta fjallkóngi Kristni Guðnasyni, sem kenndur er við Skarð. „Ég er orðin það gömul að nú fæ ég að fara með og gista í fjallaskála, reka féð og hjálpa til. Það verður gaman,“ segir Anna Sigríður að lokum og skottast af stað. Milliriðlar í barna- og unglingaflokkum fóru fram í gær og voru þrjú efstu: Barnaflokkur Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Þytur frá Skáney / Borgfirðingur / 8,83 Haukur Orri Bergmann Heiðarsson / Hnokki frá Reykhólum / Snæfellingur / 8,77 Fríða Hildur Steinarsdóttir / Framsókn frá Austurhlíð 2 / Geysir / 8,65 Unglingaflokkur Elva Rún Jónsdóttir / Hraunar frá Vorsabæ II / Sprettur / 8,61 Glódís Líf Gunnarsdóttir / Goði frá Ketilsstöðum / Máni / 8,60 (jafnt) Lilja Dögg Ágústsdóttir / Klerkur frá Bjarnanesi / Geysir / 8,56 (jafnt) Svandís Aitken Sævarsdóttir / Fjöður frá Hrísakoti / Sleipnir / 8,56 Beinar útsendingar og dagleg samantekt á Vísi Landsmót hestamanna stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu dagana 3. til 10. júlí. Streymisveitan Alendis TV tryggði sér útsendingarétt á Landsmóti og sýnir bæði frá keppnisbrautinni og kynbótabrautinni. Vísir er í samstarfi við Alendis, sýnir daglega samantekt og tengist beinni útsendingu frá völdum dagskrárliðum á kvöldin. Lesendur Vísis og áhorfendur Stöðvar 2 Vísis geta því fengið innsýn í Landsmót hestamanna, en útsendingu frá allri dagskrá má síðan nálgast með áskrift á alendis.is. Hér fyrir neðan má sjá samantektarmyndbönd frá keppni gærdagsins. Klippa: Milliriðill í unglingaflokki - Landsmót hestamanna Klippa: Milliriðill í barnaflokki - Landsmót hestamanna Klippa: Forkeppni í tölti - Landsmót hestamanna Klippa: Forkeppni í fimmgangi - Landsmót hestamanna Klippa: Milliriðill í B-flokki - Landsmót hestamanna
Hestar Landsmót hestamanna Krakkar Rangárþing ytra Tengdar fréttir Hestur Kára einn sá elsti sem hefur keppt á Landsmóti „Mér þykir mjög vænt um þennan hest en var hræddur um að hann hefði ekki nægan kraft. Guði sé lof að ég hafði rangt fyrir mér. Ég var mjög stressaður,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og hrossaræktandi, eftir óvenjulega sýningu Stakks frá Halldórsstöðum, hests í hans eigu, og knapa hans Sigurbjörns Bárðarsonar í sérstakri forkeppni í A-flokki á Landsmóti hestamanna á Hellu í gær. 5. júlí 2022 13:01 Gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum Von er á þúsundum gesta á Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. „Stemningin er frábær nú þegar,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri LM2022 en mótið stendur yfir alla vikuna. 4. júlí 2022 11:01 Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Hinn fjórtán ára Venni vann í Noregi Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Er hægt að stöðva Víkingana? Serena snýr aftur á tennisvöllinn Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Gafst aldrei upp þrátt fyrir áfallið en komst ekki á heimsleikana Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Hættir með vefinn sinn Handbolti.is HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Gefa heila goðsagnarinnar til rannsókna Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Sjá meira
Hestur Kára einn sá elsti sem hefur keppt á Landsmóti „Mér þykir mjög vænt um þennan hest en var hræddur um að hann hefði ekki nægan kraft. Guði sé lof að ég hafði rangt fyrir mér. Ég var mjög stressaður,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og hrossaræktandi, eftir óvenjulega sýningu Stakks frá Halldórsstöðum, hests í hans eigu, og knapa hans Sigurbjörns Bárðarsonar í sérstakri forkeppni í A-flokki á Landsmóti hestamanna á Hellu í gær. 5. júlí 2022 13:01
Gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum Von er á þúsundum gesta á Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. „Stemningin er frábær nú þegar,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri LM2022 en mótið stendur yfir alla vikuna. 4. júlí 2022 11:01