Bréf John Lennons til Paul McCartney á uppboði Elísabet Hanna skrifar 9. ágúst 2022 14:01 Mynd sem var tekin af vinunum árið 1964. Getty/William Vanderson Bréf John Lennons til Paul McCartney sem skrifað var árið 1971 er nú á uppboði. Bréfið er þrjár blaðsíður að lengd og í því stendur meðal annars: „Ég hélt að þú værir búinn að ná því á þessum tímapunkti að ég er JOHNOGYOKO.“
Talið er að bréfið muni seljast á allt að 40.000 dollara á uppboðinu eða um 5.493.600 íslenskar krónur. Samkvæmt upplýsingum frá uppboðshaldara er bréfið svar John Lennons við viðtali sem tekið var við Paul McCartney og birtist í Melody Maker þenn 20. nóvember 1971. Í viðtalinu deildi Paul meðal annars hugsunum sínum um upplausn Bítlanna, John og Yoko Ono. Vildi að bréfið yrði birt sem svar við viðtali Pauls „John var svo reiður þegar hann las viðtalið að hann sendi þetta þriggja blaðsíðna, undirritaða og handskrifaða bréf, stílað á Paul, til Melody Maker, til birtingar, og bað þá, með eigin rithönd, um jafnan tíma,“ stendur einnig í skráningunni fyrir uppboðið. Svo fór að bréfið var birt þann 4. desember 1971 í tímaritinu Melody Maker. Bréfið sem um ræðir.Vefur Gotta Have Rock and Roll. Gagnrýnir Paul Bréfið er stílað á Paul og þáverandi eiginkonu hans Lindu McCartney. Í því byrjaði Lennon á að snerta á fjármálunum í kringum Apple Records. Síðan lýsti hann viðskiptatengdu símtali þeirra á milli og sakar Paul um að hafa farið á bakvið sig við kaup á hlutabréfum í Northern Songs. Hann gagnrýnir Paul einnig fyrir óákveðni hans og augljósan falskan barnaleika í að takast á við fjárhagsvandamál þess að brjóta upp hljómsveitina og segir að það sé ekki eins auðvelt og að „skrifa undir pappírsbút.“ Bítlarnir George Harrison, John Lennon, Paul McCartney og Ringo Starr.Getty/Bettmann Vildi ekki hittast án Lindu og Yoko Lennon endaði bréfið með því að fullyrða að hann bæri engin illindi til Pauls og að þeir vildu í grunninn sömu hlutina. Hann sagðist vera opinn fyrir því að hittast. En bætti svo við: „Það sem gerði okkur virkilega furða var að biðja um það að hittast ÁN LINDU OG YOKO. Ég veit að þú ert kalhæðinn! En við skulum ekki ganga of langt! „Ég hélt að þú værir búinn að ná því á þessum tímapunkti að ég er JOHNOGYOKO,"
Tónlist Bretland Tengdar fréttir Segir Lennon hafa sundrað Bítlunum Bítillinn Paul McCartney segist hafa í tæp fimmtíu ár ranglega verið sakaður um að bera ábyrgð á því að hljómsveitin goðsagnakennda hætti. Í nýju viðtali segir hann John Lennon hafa gengið frá Bítlunum. 11. október 2021 11:17 John Lennon hefði orðið áttræður í dag John Ono Lennon hefði orðið áttræður í dag hefði hann lifað og er þess minnst með ýmsum hætti um allan heim. Tendrað verður á Friðarsúlunni í Viðey klukkan níu í kvöld og verður sent út beint frá athöfninni á vef borgarinnar og listaverksins sjálfs. 9. október 2020 12:05 Bítlarnir höfðu ekki enn gefið út plötu síðast þegar Burnley vann á Old Trafford Burnley vann sinn fyrsta sigur á Manchester United á Old Trafford í 58 ár í gær. 23. janúar 2020 13:30 Paul McCartney tróð óvænt upp á fornum slóðum Paul McCartney kom aðdáendum í heimaborginni Liverpool á óvart í vikunni með óvæntum tónleikum í Cavern klúbbnum þar sem Bítlarnir slógu fyrst í gegn í upphafi sjöunda áratugarins. 29. júlí 2018 19:39 Mest lesið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið 007 First Light: Bond hefur aldrei verið betri Leikjavísir Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Fleiri fréttir Leita lemúrsins sem er alltaf að týnast „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn Sjá meira
Segir Lennon hafa sundrað Bítlunum Bítillinn Paul McCartney segist hafa í tæp fimmtíu ár ranglega verið sakaður um að bera ábyrgð á því að hljómsveitin goðsagnakennda hætti. Í nýju viðtali segir hann John Lennon hafa gengið frá Bítlunum. 11. október 2021 11:17
John Lennon hefði orðið áttræður í dag John Ono Lennon hefði orðið áttræður í dag hefði hann lifað og er þess minnst með ýmsum hætti um allan heim. Tendrað verður á Friðarsúlunni í Viðey klukkan níu í kvöld og verður sent út beint frá athöfninni á vef borgarinnar og listaverksins sjálfs. 9. október 2020 12:05
Bítlarnir höfðu ekki enn gefið út plötu síðast þegar Burnley vann á Old Trafford Burnley vann sinn fyrsta sigur á Manchester United á Old Trafford í 58 ár í gær. 23. janúar 2020 13:30
Paul McCartney tróð óvænt upp á fornum slóðum Paul McCartney kom aðdáendum í heimaborginni Liverpool á óvart í vikunni með óvæntum tónleikum í Cavern klúbbnum þar sem Bítlarnir slógu fyrst í gegn í upphafi sjöunda áratugarins. 29. júlí 2018 19:39