Polestar 3 verður frumsýndur í október Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 1. október 2022 07:01 Polestar 3. Sænski bílaframleiðandinn Polestar mun frumsýna nýjustu viðbótina í sínu framboð í Kaupmannahöfn, þann 12. október næstkomandi. Um er að ræða rafjepplinginn Polestar 3.
Polestar 3 er byggður á rafmögnuðum tæknigrunni sem er þróaður af Volvo Cars og státar af nýjustu tækni. Meðal þess sem um ræðir eru ýmis öryggiskerfi frá Volvo, kjarnatölva frá NVIDIA og aðrar lausnir frá birgjum á borð við Zenseact, Luminar og Smart Eye. „Við urðum að spyrja okkur: Hvernig ætti nútíma jeppi að líta út? Polestar 3 skilgreinir jeppann fyrir rafmagnsöldina og við hönnun hans horfðum við á nokkur grundvallaratriði, hlutföll, stöðu og loftaflfræði,“ segir Thomas Ingenlath forstjóri Polestar. Thomas Ingenlath með Polestar 2 og gyllta stýrinu. Performance pakkinn býður upp á 380 kW og 910 Nm hámarksafköst, ásamt Polestar Engineered undirvagnsstillingu fyrir sívirka dempara og loftfjöðrun. Sænskar gyllingar frá Polestar fylgja pakkanum, þar á meðal á ventlalokum, öryggisbeltum og laserljósalista að innan. Þá segir í tilkynningu frá Polestar vegna frumsýningarinnar: Aksturseiginleikar eru lykilatriði fyrir Polestar, með áherslu á meira en eingöngu beinlínuhröðun. Í upphafi eru allar útgáfur fjórhjóladrifnar, tvískipt aflrás með rafdrifnu „torque vectoring“ sem tengt er aftari rafmótor með tvíkúplingu. Staðalbúnaður er aðlagandi fjöðrunarkerfi með tveggja hólfa loftfjöðrun og sívirkum dempurum, sem gerir Polestar 3 kleift að skipta á milli þæginda og stífrar fjöðrunar og aðlaga demparana að aðstæðum á vegum á tveggja millisekúndna fresti (500 Hz). „Það er þessi skjóti eiginleiki til að breytast úr þægilegum „krúser“ í beittan, lipran akstursbíl á augnabliki sem gerir Polestar 3 sérstakan sem rafknúinn akstursjeppa. Hann nýtur líka góðs af lágum þyngdarpunkti og miklu hjólabili fyrir fullkominn stöðugleika og spennandi tilfinningu undir stýri,” hélt Thomas Ingenlath áfram.
Vistvænir bílar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent