Innlent

Vön hesta­kona látin bera hluta tjóns vegna eigin sakar

Árni Sæberg skrifar
Konan féll af hesti sem hún hafði fengið að láni. Þessir hestar tengjast málinu ekki.
Konan féll af hesti sem hún hafði fengið að láni. Þessir hestar tengjast málinu ekki. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur fallist á kröfu hestakonu þess efnis að bótaskylda VÍS vegna slyss sem hún varð fyrir þegar hún datt af hestbaki árið 2016 yrði samþykkt. Konan var þó dæmd til að bera fjórðung tjóns síns vegna eigin sakar.

Í apríl árið 2016 varð konan, sem er reiðkennari og tamningarmaður, fyrir líkamstjóni þegar hún æfði sig í að skeiðleggja hest í gegnum opna reiðhöll og datt af baki eftir að hestur hennar beygði skyndilega til hliðar þegar út var komið, að því er segir í dómi Landsréttar.

Konan höfðaði mál til staðfestingar bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu ónefnds hestamannafélags hjá VÍS. Hún byggði málatilbúnað sinn á því að slysið hafi orðið vegna vanbúnaðar og hættulegra aðstæðna í reiðhöllinni þar sem starfsfólk hestamannafélagsins, sem rekur reiðhöllina, hafði vanrækt að setja upp línur fyrir æfinguna til að afmarka svokallaða niðurhægingarbraut fyrir framan dyrnar þar sem knapar komu á hestum sínum út úr höllinni, oft á mikilli ferð.

VÍS bar annars vegar fyrir sig að slysið hafi verið óhappatilvik og hins vegar að konan hafi sjálf borið ábyrgð á tjóni sínu með aðgæsluleysi.

Slysið hefði ekki orðið ef línur hefðu verið settar upp

Í dómi héraðsdóms segir að talið væri að að búast hefði mátt við því að hesturinn brygðist við eins og hann gerði og að slysið hefði ekki orðið ef línur hefðu verið settar upp til að hægja á ferð hestsins þegar út var komið. Slysið mætti þannig rekja til gáleysis starfsfólks hestamannafélagsins og var bótaskylda úr ábyrgðartryggingu félagsins hjá VÍS því viðurkennd.

Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu en taldi þó að konan, verandi menntaður reiðkennari og tamningarmaður, hefði mátt vita að hún tæki áhættu með því að leggja hest sinn á flugskeið þrátt fyrir að vita að engin niðurhægingarbraut væri fyrir utan reiðhöllina.

Því var bótaskylda staðfest en konan látin bera fjórðung tjóns síns sjálf.

Dóm Landsréttar má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×