Burstar alltaf tennurnar rétt áður en hún stígur á svið Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. október 2022 10:01 Kolbrún Óskarsdóttir, KUSK, var að gefa út plötu í dag. Hún kemur fram á Iceland Airwaves í ár. Aðsend KUSK er listamannsnafn tónlistarkonunnar Kolbrúnar Óskarsdóttur en hún skaust upp á stjörnuhimininn fyrr á árinu þegar hún bar sigur úr býtum í Músíktilraunum. KUSK kemur fram á Airwaves í ár en hún var jafnframt að senda frá sér plötuna Skvaldur í dag. Blaðamaður tók púlsinn á KUSK.
Alls konar fólk og ný lög „Airwaves leggst ótrúlega vel í mig, ég er hrikalega spennt að fá að prófa spila þar í fyrsta sinn,“ segir Kolbrún full tilhlökkunar. „Ég hef þekkt hátíðina lengi og það er einhvern veginn alltaf jafn góð stemning í kringum hana. Ég meina fólk leggur í það að taka flugvél alla leið til Íslands bara til að fara á hana. Ég hugsa að ég sé spenntust fyrir því að fá að hitta allt þetta fólk, bæði alla sem koma og horfa og líka þá sem spila, það eru svo ótrúlega margir flottir listamenn í ár. Svo fæ ég líka að flytja ný lög sem loksins verða komin út sem er líka mjög spennandi.“ Hádegis pulsan fastur liður Kolbrún stundar nám við Listaháskólann og má því segja að hún lifi sí skapandi lífi. Aðspurð um daglega rútínu segir hún: „Ég vakna alltaf, fæ mér kaffi í múmínbolla og spæli mér egg. Síðan keyri ég í skólann með pepp tónlist í botni því ég er líklegast enn þá hálfsofandi þegar ég legg af stað. Ég byrjaði í LHÍ á Sviðshöfundabraut í haust og eyði því byrjun dagsins þar og fæ mér eina góða pulsu í hádeginu.“ View this post on Instagram A post shared by Kolbru n - KUSK (@kolbrunoskars) Kolbrún og Hrannar Máni, eða KUSK og Óviti eins og þau kalla sig, hafa unnið mikið saman í tónlistinni og hittast næstum daglega. „Eftir skóla hitti ég oftast hinn eina sanna Óvita og við förum gjarna að gera tónlist, undirbúa tónleika eða förum á KEX og fáum okkur pizzu. Mig langar ekki að vita hvað ég hef keypt mér margar pizzur á KEX í ár.“ View this post on Instagram A post shared by Kolbru n - KUSK (@kolbrunoskars) Litlu hlutirnir, drifkraftur og jákvæð orka Þegar Kolbrún semur tónlist og texta segist hún sækja mikinn innblástur í umhverfið. „Mér finnst gaman að leika mér að því að koma hugsunum mínum í orð með því að lýsa hlutum sem ég sé. Ég stend föst á því mottói að njóta litlu hlutanna í lífinu og nota myndlíkingar til þess að koma þeim inn í tónlistina. Hvað varðar lífið þá kemur innblásturinn hundrað prósent frá fólkinu í kringum mig. Ég hef uppgötvað það í gegnum lífið að það er svo gott að vera umkringdur fólki sem hefur góð áhrif á þig. Hvort sem það er drifkraftur eða bara jákvæð orka þá fyllir það mig alltaf innblæstri.“ View this post on Instagram A post shared by Kolbru n - KUSK (@kolbrunoskars) Yndislegt ferli Kolbrún var sem áður segir að senda frá sér plötuna Skvaldur. „Platan sjálf hefur verið í bígerð í um það bil hálft ár. Ég var samt búin að semja eitthvað áður fyrir það en þá var planið aldrei að gefa út. Lagið LÚPÍNUR, sem verður síðasta lagið á plötunni, var til dæmis samið heima á stofugólfi sumarið 2021. Þegar Músíktilraunir komu inn á borðið og ég fór að semja meira varð platan smám saman til. Núna eru þetta níu lög sem ég er svo sannarlega stolt af og hlakka til að leyfa fólki að heyra. Þetta er líka búið að vera svo yndislegt ferli, er búin að fá að vinna með svo góðu fólki. LÚPÍNUR var til dæmis unnið áfram með Snorra Beck Magnússyni og svo er Óviti gestalistamaður á laginu MORGUN. Svo fékk ég svo skemmtilega að vinna í mixi með Kára Hrafn Guðmundssyni og Starri Snær Valdimarsson masteraði.“ View this post on Instagram A post shared by Kolbru n - KUSK (@kolbrunoskars) Listasúpa Listin einkennir líf Kolbrúnar og hefur hún ástríðu fyrir mörgu sem tilheyrir því sviði. „Ég er búin að flakka rosalega mikið milli hluta sem ég vil gera síðustu ár. Ég ætlaði alltaf að verða myndlistarmaður og leikkona. Þótt ég hafi vissulega skipt um stefnu frekar oft þá hefur mig alltaf langað í einhvers konar list.“ Kolbrún datt fyrir tilviljun inn í tónlistina árið 2020 og fór þá bæði að pródúsera og semja. „Síðan þá hef ég hiklaust stefnt á að gera eins mikla tónlist og spila eins mikið og tækifæri gefst. Það gefur mér svo mikið og mér finnst svo gaman að geta líka gefið frá mér. Svo hefur myndlistin og sviðslistirnar líka fylgt mér í gegnum þetta enda er ég komin í listnám núna í Listaháskólanum. Ég er enn þá svolítið að finna út úr því hvernig mig langar að blanda öllu þessu saman en akkúrat núna er ég bara að njóta þess að vera í listasúpu.“ View this post on Instagram A post shared by Kolbru n - KUSK (@kolbrunoskars) Pizzan góður undirbúningur Fyrir tónleika reynir Kolbrún að sofa út ef tækifæri gefst. „Þannig leyfi ég spennunni aðeins að malla. Svo tek ég út allt stressið í soundcheckinu, en þar prófa ég líka öll pabbadjókin sem ég geymi í vasanum til að koma mér í stuð. Eftir soundcheck er fátt betra en að fá sér góða máltíð fyrir kvöldið og þá verður, ótrúlegt en satt, KEX pizza oftast fyrir valinu. Þegar nær dregur því að stíga á svið finnst mér mjög gott að bursta tennurnar, það er eitthvað sem ég hef einhvern veginn alltaf gert. Það síðasta sem ég geri svo fyrir tónleika er að taka eina góða stress klósettferð. Svo er bara að njóta,“ segir Kolbrún að lokum.
Airwaves Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Tengdar fréttir „Hefði hlegið að mér og sagt að mig væri að dreyma of stórt“ Hin 19 ára gamla Kolbrún Óskarsdóttir, jafnan þekkt sem KUSK, hefur átt öflugt tónlistarár. Hún sigraði Músíktilraunir í mars síðastliðnum og hefur komið fram á tónleikum víða um landið síðan þá. KUSK var að senda frá sér lagið UNDAN BERUM HIMNI, sem er jafnframt fyrsti síngúll af væntanlegri plötu. 19. ágúst 2022 15:00 Röyksopp á Airwaves 2022 Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fer fram með pomp og prakt 3. - 5. nóvember næstkomandi. Fjölbreytt tónlistaratriði koma fram í ár en hátíðin tilkynnti rétt í þessu 23 atriði til viðbótar við dagskrána. 18. ágúst 2022 10:01 KUSK og Óviti gefa út lagið Elsku vinur: „Samið í einu góðu útrásarkasti í stúdíóinu“ Tónlistarfólkið Kolbrún og Hrannar, jafnan þekkt sem KUSK og Óviti, sendu frá sér lagið Elsku vinur í dag. Þetta er í annað sinn sem þau sameina krafta sína en áður hafa þau gefið út lagið Flugvélar. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að forvitnast um nýja lagið. 20. maí 2022 11:31 „Þegar ég byrjaði að brjóta reglur þá fór ég að upplifa lífið á skemmtilegri hátt“ Tónlistarkonan Laufey Lín hefur náð gríðarlegum árangri á undanförnum árum úti í hinum stóra heimi. Blaðamaður hitti Laufeyju í kaffi og spjall um lífið og listina en hún er á miðju tónleikaferðalagi um þessar mundir. 26. október 2022 06:01 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Króli trúlofaður Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira
„Hefði hlegið að mér og sagt að mig væri að dreyma of stórt“ Hin 19 ára gamla Kolbrún Óskarsdóttir, jafnan þekkt sem KUSK, hefur átt öflugt tónlistarár. Hún sigraði Músíktilraunir í mars síðastliðnum og hefur komið fram á tónleikum víða um landið síðan þá. KUSK var að senda frá sér lagið UNDAN BERUM HIMNI, sem er jafnframt fyrsti síngúll af væntanlegri plötu. 19. ágúst 2022 15:00
Röyksopp á Airwaves 2022 Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fer fram með pomp og prakt 3. - 5. nóvember næstkomandi. Fjölbreytt tónlistaratriði koma fram í ár en hátíðin tilkynnti rétt í þessu 23 atriði til viðbótar við dagskrána. 18. ágúst 2022 10:01
KUSK og Óviti gefa út lagið Elsku vinur: „Samið í einu góðu útrásarkasti í stúdíóinu“ Tónlistarfólkið Kolbrún og Hrannar, jafnan þekkt sem KUSK og Óviti, sendu frá sér lagið Elsku vinur í dag. Þetta er í annað sinn sem þau sameina krafta sína en áður hafa þau gefið út lagið Flugvélar. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að forvitnast um nýja lagið. 20. maí 2022 11:31
„Þegar ég byrjaði að brjóta reglur þá fór ég að upplifa lífið á skemmtilegri hátt“ Tónlistarkonan Laufey Lín hefur náð gríðarlegum árangri á undanförnum árum úti í hinum stóra heimi. Blaðamaður hitti Laufeyju í kaffi og spjall um lífið og listina en hún er á miðju tónleikaferðalagi um þessar mundir. 26. október 2022 06:01