Stærsti hluthafi Century Aluminum styður ekki viðskiptabann á rússneskt ál
![Álver Rusal í Irkutsk í Síberíu var byggt árið 1962 og framleiðir tæp 360 þúsund tonn á ári.](https://www.visir.is/i/C55AA9FABE728280A9D17B73FD0AB5E4864410D55EA04A1B2AFD434BE41B8F4D_713x0.jpg)
Eigandi 46 prósent hlutafjár Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls við Grundartanga, leggst gegn því að vestræn stjórnvöld leggi viðskiptabann á rússneskt ál. Stórir álframleiðendur á heimsvísu hafa kallað eftir því að viðskipti með rússneska málma verði settar hömlur líkt og gert hefur verið með ýmsar aðrar hrávörur.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9A90318B1DBDC88525513BBDAE5A9CED4DCC660C54A5F1B31B55CC284A31199D_308x200.jpg)
Raforkuverð til Rio Tinto á Íslandi hækkar vegna verðbólgu í Bandaríkjunum
Raforkuverðið sem álver Rio Tinto á Íslandi greiðir til Landsvirkjunar er á svipuðum slóðum og það sem fyrirtækið greiddi áður en endursamið var við Landsvirkjun í febrúar á síðasta ári. Verðlagsþróun í Bandaríkjunum er helsti drifkraftur hækkunarinnar, en stærstur hluti raforkusamnings Rio Tinto við Landsvirkjun er verðtryggður miðað við neysluverðsvísitölu í Bandaríkjunum. Tólf mánaða verðbólga í Bandaríkjunum stendur nú í 8,5 prósentum.