Númer 1250 í röðinni! Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar 2. nóvember 2022 09:01 Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður og af því tilefni efndu ADHD samtökin að venju til margvíslegra viðburða, með hápunkti undir lok mánaðar með opnu málþingi um afleiðingar ómeðhöndlaðs ADHD, endalausa biðlista eftir greiningu og samfélagslegan kostnað þar að lútandi. Jafnframt voru „Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna“ veitt öðru sinni. Handhafi þetta árið eru KFUM/K, fyrir sumarbúðirnað „Stelpur í stuði“ og „Gauraflokkur“, frumkvöðlastarf sem félagasamtökin hafa staðið að frá 2007. Þar fá strákar og stelpur með ADHD og skyldar raskanir tækifæri til að fara í sumarbúðir á eigin forsendum, þar sem þeim er mætt á uppbyggilegan og jákvæðan hátt. Þegar Björk heitin Þórarinsdóttir tók við formennsku samtakanna árið 2010 lagði hún grunn að nýrri vegferð: „Við ætlum að breyta orðræðunni og almennu viðhorfi gagnvart ADHD – það verður okkar leiðarstef næstu 20 árin.“ Nú stöndum við í miðri á og margt hefur áorkast. Meðal leikna sem lærðra gýs þó enn og aftur upp misgáfuleg umræða um ADHD lyf, staðan er þó allt önnur en fyrr. Þetta mjakast. Upp á síðkastið sjá ýmsir rautt vegna mikillar aukningar í ADHD lyfjameðferðar. Á móti bendum við hiklaust á að þetta sé breyting til batnaðar, enda fái fleiri þá aðstoð sem þarf. Já, við erum rétt í miðri á og áfram þarf að halda kúrs. Önnur brotalöm sem ADHD samtökin hafa sett á forgangslista er að styrkja menntun kennara og annars starfsfólks í menntakerfinu. Á þessari öld er ótækt að almennum kennaranemum sé aðeins boðið upp á valáfanga þar sem m.a. er snert á ADHD, einhverfu og öðrum skyldum röskunum. Nokkurn tíma mun taka að snúa menntafleyinu. Á meðan senda samtökin björgunarbát til sveitarfélaga og skóla í formi námskeiða sem ætlað er að auka skilning og þekkingu kennara og annars starfsfólks, með verkfæri af ýmsu tagi sem nýtast í starfi. Seint virðist sumt þó breytast. Hátt í áratug tók að fá löggjafann til að viðurkenna nauðsyn þess að niðurgreiða sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna en 2 árum seinna bólar ekkert á fjármagni, enn og aftur heyrast gífuryrði úr háum sætum varðandi kostnað við lífsnauðsinlega lyfjameðferð. Á meðan bera börn og fullorðnir með ADHD óbærilega byrði, sama hvernig á málið er litið. Hér þarf Alþingi að taka sig á. Biðlistar eftir greiningu fyrir börn og fullorðna lengjast út í eitt. Þrátt fyrir tilkomu Geðheilsumiðstöðvar barna (einhverfa, ADHD og fleiri taugaþroskaraskanir) og Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna hjá HH standa hátt í 900 börn og yfir 1200 fullorðnir úti í kuldanum – að óbreyttu, undir árslok 2022, mun biðin verða 1-2 ár hjá börnum og yfir 3 ár, hjá fullorðnum. Þokan er þó ekki svo gallsvört að ekki glitti í land. Á fyrrnefndu málþingi fjallaði Elvar Daníelsson, yfirlæknir ADHD teymis HH, um nýtt vinnulag sem verið er að innleiða. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og ekki tekið í mál að stytta sér leið. Með þeim undantekningum þó að komi aðili með staðfesta greiningu frá fagaðila innanlands eða erlendis frá þá megi hann fara beint í meðferðarhlutann. Með biðlista í fanginu sem telur á annað þúsund manns og áætlað að um 480 einstaklingar bætist við á hverju ári mun þó taka tíma að stytta biðina svo ásættanlegt sé. Miðað við núverandi mönnun afkasti teymið um 340 fullum greiningum á ári, en með örlítilli fjölgun stöðugilda nú um mánaðarmótin og fullnýttri fjárlagaheimild stefni í að teymið anni 480 greiningum á ári. Hér þarf ekki mikla reiknikúnst til að sjá að dæmið gangi vart upp. Fáið teymið hins vegar að bæta við sig rúmlega 2 stöðugildum sálfræðinga og hálfu stöðugildi geðlæknis tæki um 3 ár að eyða biðlistanum og tryggja í mesta lagi 6 mánaða bið fyrir þá sem bætast við. Málið snýst sem sagt að mestu leyti um aukið fjármagn og byggt á þessari greiningu Elvars ætti fjárveitingarvaldið að hafa þá leiðarlýsingu sem þarf til að koma skipinu í höfn með hraði. Fyrir hönd ADHD samtakanna vil ég þó ítreka að þetta megi og eigi helst að vinna enn hraðar. Sama þarf svo til hvað biðlista barna varðar og enn hraðar ef eitthvað er. Anna Tara Andrésdóttir, doktorsnemi, spurði í sínum fyrirlestri hvort við vildum betra líf? Í máli hennar kom meðal annars fram að lífslíkur einstaklinga með ADHD séu 9-13 árum styttri en almennt gerist og án lyfjameðferðar sé tíðni sjálfsvíga innan sama hóps um þriðjungi hærri. Þetta og margt fleira má jafnframt lesa í grein hennar sem birt var á vef Vísi 27. september [https://www.visir.is/g/20222316385d]. Jafnframt fjallaði Anna Tara um ýmsar hliðar meðferðar og færði um leið sterk rök fyrir nauðsyn þess að börn og fullorðnir með ADHD hafi aðgang að lyfjameðferð. Hjá fullorðnum gæfi vönduð samþætt meðferð tækifæri til að gera stórar breytingar á eigin lífi. Fyrir börn og ungmenni snúist málið hreinlega um öryggi, enda sýni rannsóknir glöggt mun hærri líkur á slysum og öðrum afleiðingum sem enginn vill fyrir fram leggja á barn sitt. Einnig kom Anna Tara að hreinum kostnaði samfélagsins sem hlytist af ógreindu og/eða ómeðhöndluðu ADHD. Þær tölur eru vissulega sláandi og ítreka enn frekar nauðsyn þess að snúa vörn í sókn, öllum til góðs. Haraldur Erlendsson, geðlæknir, lagði áherslu á að einstaklingar með ADHD og aðrar raskanir væru í raun auðlind fyrir samfélagið. Nauðsynlegt væri að rýna betur í greiningarmörk, meta fremur hamlandi einkenni en önnur sem minna trufla daglegt líf og til dæmis mætti ígrunda hvort aðlaga ætti hefðbundið vinnuumhverfi að raunverulegum þörfum okkar, fremur en aðlaga starfsmenn að því. Haraldur kom víða við og sagði í raun ADHD vera bleikan fíl sem fæstir sjá. Við þurfum að opna augun. Undir lok málþings steig Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir á stokk og sagði frá þeim breytingum sem á hennar lífi urðu þegar hún loks fékk greiningu og lyfjameðferð á fullorðinsárum. Undirstrikaði um leið hvernig hennar eigin fordómar höfðu flækst fyrir í upphafi, þegar hún þorði vart að segja vinum og vandamönnum frá nýrri stöðu mála. Með tímanum hristi hún þetta af sér og hefur síðan gert góða hluti í leik og starfi. Í frásögn sinni var sem Hafdís Hrönn dansaði milli margs þess sem aðrir fyrirlesarar snertu á og skyldi engan undra. Skortur á aðgengi að ADHD greiningu, meðferð og lyfjum er dauðans alvara. Vilt þú vera númer 1250 í röðinni? Höfundur er formaður ADHD samtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhjálmur Hjálmarsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun