Komið að þolmörkum í fjölda skemmtiferðaskipa Kjartan Kjartansson skrifar 16. desember 2022 09:01 Skemmtiferðaskip í höfn á Akureyri. Búist er við því að þeim fjölgi um 40% á milli ára næsta sumar. Vísir/Vilhelm Mikil fjölgun farþega með skemmtiferðaskipum kallar á viðbrögð og aukna stýringu á umferð þeirra. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands telur að komið sé að þolmörkum með fjöldanum sem er væntanlegur næsta sumar.
Eftir tveggja ára ládeyðu í kórónuveirufaraldrinum náði fjöldi farþega með skemmtiferðaskipum sér verulega á strik í sumar. Fjöldinn þá bliknar aftur á móti í samanburði við þann sem er væntanlegur til hafna landsins á næsta ári. Samkvæmt núverandi bókunarstöðu Faxaflóahafna stefnir í meira en helmingsfjölgun farþega sem verða fleiri en 300.000 talsins. Skarphéðinn Berg Steinarsson, fráfarandi ferðamálastjóri, lýsti efasemdum um að móttaka skemmtiferðaskipa væri besta ráðstöfunin á náttúruauðlindum, áfangastöðum og kolefnisspori landsins í viðtali við vefsíðuna Túrista í síðustu viku. Tekjur af skemmtiferðaskipum séu aðeins um eitt prósent af heildartekjum ferðaþjónustunnar. „Miðað við kolefnissporið af skipunum, átroðninginn og mannmergðina er illa farið með það svigrúm sem við höfum. Við ættum ekki að nota kolefnisspor okkar í þetta,“ sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson við Túrista en hagsmunaaðilar í komum skemmtiferðaskipa hafa gert athugasemdir við tölur hans um tekjur af skipunum. Á Akureyri er reiknað með um fjörutíu prósent fjölgun farþega með skemmtiferðaskipum næsta sumar. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir skipin góða bútbót sem skapi mikla vinnu fyrir rekstraraðilar sem selja mat, afþreyingu, leiðsögn og akstur fyrir norðan. Hins vegar kalli mikil fjölgun farþega á viðbrögð og meiri stýringu á umferð skipanna. Passa þurfi upp á að farþegar skipanna komi ekki í það stórum hópum að þeir skaði upplifun annarra hópa ferðamanna. „Það er ekki hægt að fjölga endalaust í Akureyrarhöfn. Ef ekkert er að gert erum við bara komin í þolmörkin. Ég held að við séum bara komin í þau mörk,“ segir Arnheiður við Vísi. Markaðssetji minni hafnir til að dreifa álaginu Nóg rými er þó eftir til að taka á móti fleiri ferðamönnum með betri skipulagningu og dreifingu ferðamanna, að mati Arnheiðar. Auka þurfi framboð á þjónustu verulega fyrir fjölgun skemmtiferðaskipa fyrir norðan næsta sumar. Einnig þurfi að skoða að dreifa álaginu innan einstakra daga þannig að öll skipin komi ekki til hafnar að morgni. „Það kallar á samstarf allra hafnanna hringinn í kringum landið vegna þess að skipin koma í fleira en eina höfn um landið. Ef þau færa sér hér á Akureyri þurfa þau að færa sig í Reykjavík og Ísafirði líka,“ segir hún. Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Einnig þurfi að markaðssetja fleiri hafnir fyrir skemmtiferðaskipin sem geti hjálpað til við að dreifa álaginu. Arnheiður nefnir sem dæmi að þrjú skip hafi komið til hafnar í Skagafirði í sumar og tólf séu væntanleg á næsta ári. Það kalli aftur á að ferðaþjónustuaðilar á slíkum stöðum búi til afþreyingu til að selja ferðalöngunum. „Það skiptir alltaf máli að horfa á hvernig við getum búið til virðisauka út úr þessum komum,“ segir hún. Viðbót þegar hótelrými eru nær fullnýtt Ein gagnrýni á skemmtiferðaskipakomur er að farþegar skipanna skilji minna eftir sig en aðrir. Farþegarnir staldra yfirleitt stutt við, aðeins hluta úr degi, og þeir séu í fæði á skipunum. Arnheiður segir þessa umræðu háværa og eiga að einhverju leyti rétt á sér en ekki öllu. Þannig sé heilmikil útgerð í rútu- og leigubílaakstri og gestirnir fari í hádegismat í landi. „En þessir gestir eru náttúrulega ekki að stoppa það lengi að þeir séu að kaupa sér mikla afþreyingu eða lengri ferðir þannig að því leytinu til skila þeir minnu en venjulegi ferðamaður sem kemur með flugi af því að þú nærð ekki að selja honum jafn þéttan pakka,“ segir hún. Á hinn bóginn nýti farþegar skemmtiferðaskipanna minna af innviðum en aðrir erlendir ferðamenn. „Í sumar verður hótelgisting hjá okkur hér fyrir norðan að mestu leyti full. Þessir farþegar koma þá til viðbótar aðra farþega og auka þá sölumöguleika ferðaskipuleggjenda á þeim tíma sem er jákvætt.“ Ferðamenn gæða sér á pylsu á blíðviðrisdegi á Akureyri.Vísir/Vilhelm Hafnirnar hafa sótt skipin Á meðal þess sem fráfarandi ferðamálastjóri gagnrýndi í viðtali sínu við Túrista var að tiltölulega þröngum hagsmunum hafi verið eftirlátið að stýra þróun ferðaþjónustunnar. Vísaði hann til þess að hafnarstjórar hringinn í kringum landið hefðu ákveðið að fjölga komum skemmtiferðaskipa um helming þrátt fyrir að innviðir væru ekki til staðar til þess. Hagsmunasamtökin Cruise Iceland vísuðu þeim orðum ferðamálastjóra á bug. Hafnarstjórar framfylgdu aðeins stefnu hafnarstjórnar og sveitarstjórna eftir atvikum. Spurð að því hvort að samskiptaleysi hafi verið á milli hafnarstjóra og ferðaþjónustunnar vill Arnheiður ekki ganga svo langt. „En þetta hefur í raun verið þannig að hafnirnar hafa verið að sækja skipin. Þetta hefur kannski verið lokaður hópur fyrirtækja sem hefur verið að þjónusta þau svona til að byrja með. Þarna hefur verið unnið gott starf en nú er þetta orðið það mikið að það þurfa fleiri að koma að því,“ segir hún. Samtal á milli Cruise Iceland, Íslandsstofu og áfangastaðastofa sé þegar farið af stað sem ekki hafi átt sér stað áður. Arnheiður mikilvægt að það samtal fari fram á landsvísu þar sem skipin fari mörg hver hringinn í kringum landið. Það kalli á samstarf á milli hafna og svæða. „Það er mjög erfitt fyrir eitt svæði að setja einhverjar reglur sem gilda ekki hjá næsta svæði,“ segir hún.
Skemmtiferðaskip á Íslandi Ferðamennska á Íslandi Hafnarmál Akureyri Tengdar fréttir Orð ferðamálastjóra lýsi skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu Formaður Cruise Iceland segir margt sem kom fram í viðtali fráfarandi ferðamálastjóra við Túrista í síðustu viku ekki vera rétt. Hann segir orð ferðamálastjóra lýsa skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu á uppbyggingu í þessum hluta ferðaþjónustunnar. 15. desember 2022 09:00 Bæjarstjóranum í Eyjum blöskrar skoðun kollega síns í Ísafjarðarbæ Bæjarstjóri Vestmannaeyja furðar sig á því að bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar telji Vestmannaeyinga geta siglt með Herjólfi til og frá Þorlákshöfn svo flýta megi dýpkun hafnar Ísfirðinga fyrir komu skemmtiferðaskipa. 7. desember 2022 10:41 Tafir á komu dæluskips ógna tugmilljóna tekjum Ísafjarðarbæjar Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ gagnrýnir Björgun og Vegagerðina fyrir margra mánaða tafir á uppdælingu til stækkunar á Sundahöfn bæjarins. Stækkun hafnarinnar skipti miklu máli fyrir tekjur bæjarins strax á næsta ári og megi ekki dragast á langinn. 6. desember 2022 19:21 Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira
Orð ferðamálastjóra lýsi skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu Formaður Cruise Iceland segir margt sem kom fram í viðtali fráfarandi ferðamálastjóra við Túrista í síðustu viku ekki vera rétt. Hann segir orð ferðamálastjóra lýsa skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu á uppbyggingu í þessum hluta ferðaþjónustunnar. 15. desember 2022 09:00
Bæjarstjóranum í Eyjum blöskrar skoðun kollega síns í Ísafjarðarbæ Bæjarstjóri Vestmannaeyja furðar sig á því að bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar telji Vestmannaeyinga geta siglt með Herjólfi til og frá Þorlákshöfn svo flýta megi dýpkun hafnar Ísfirðinga fyrir komu skemmtiferðaskipa. 7. desember 2022 10:41
Tafir á komu dæluskips ógna tugmilljóna tekjum Ísafjarðarbæjar Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ gagnrýnir Björgun og Vegagerðina fyrir margra mánaða tafir á uppdælingu til stækkunar á Sundahöfn bæjarins. Stækkun hafnarinnar skipti miklu máli fyrir tekjur bæjarins strax á næsta ári og megi ekki dragast á langinn. 6. desember 2022 19:21