„Klám er ekki neikvætt fyrirbæri í eðli sínu“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 5. janúar 2023 07:01 BDSM-félagið á Íslandi fagnar frumvarpi um afnám banns við klámi en vara við flokkun sem ýtir undir neikvæðar staðalímyndir. Stöð 2/Egill Meðlimir BDSM-félagsins á Íslandi telja núgildandi lög um klám algjörlega gagnslaus og í raun skaðleg, þar sem þau ýti undir jaðarsetningu kynlífsverkafólks og takmarki möguleika þeirra til þess að afla sér lífsviðurværis á öruggan og löglegan hátt.
Þetta kemur fram í umsögn félagsins um fram frumvarp um breytingu laga er varða bann við klámi á Íslandi. Sömu lög en breytt viðhorf Björn Leví Gunnarsson og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmenn Pírata lögðu í september síðastliðnum fram frumvarp um breytingu laga er varða bann við klámi á Íslandi. Þingmennirnir vilja að refsiheimild vegna birtingar þess, innflutnings, sölu útbýtingar eða annars konar dreifingar verði felld út. Í forsögu frumvarpsins segir að íslensk lög um klám hafi staðið að mestu leyti óbreytt í 153 ár á meðan viðhorf til kynlífs, umræða um það, kynhegðun og kynfrelsi hefur allt breyst. Þá kemur fram að Danir hafi fellt út bann við klámi árið 1969, Svíar séu ekki með bann við því og í Finnlandi er dreifing þess ólögleg einungis ef í því má finna ofbeldi, börn eða dýr. Í Noregi er klám skilgreind sem birting á kynferðislegu efni sem er misbjóðandi og er birting á því eða dreifing refsiverð með sekt eða fangelsi allt að þremur árum. Þá segir að núgildandi bann við dreifingu kláms taki ekki tillit til þeirrar spurningar og sé því úr takti við nútíma viðhorf til kynlífs og kynhegðunar. Bannið sé tímaskekkja sem þarf að fjarlægja úr lögum. Kvenréttindafélag Íslands birti umsögn í síðasta mánuði þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að hafna þessu frumvarpi. Engin nothæf skilgreining í núgildandi lögum Í fyrrnefndri umsögn BDSM-félagsins segjast meðlimir fagna því að loksins standi til að afnema lög um bann við birtingu og dreifingu á klámi úr íslenskum lagabálki. Fram kemur að margir af meðlimum félagsins hafi glímt við djúpa sjálfsskömm vegna eigin kennda og langana. „BDSM-hneigðir eru aldrei ræddar nema á neikvæðan hátt eða í háði og þegar verið er að ræða klám og skaðleg áhrif þess eru kynferðisathafnir okkar gjarnan taldar upp af sem dæmi um svokallað ofbeldisklám. Það fylgir aldrei sögunni að til sé fólk sem hafi virkilega unun af þessum athöfnum og að mögulega sé umrætt myndefni því ekki að sýna ofbeldi, heldur samþykkta skynjunarleiki.“Þá tekur félagið undir þann rökstuðning sem fram kemur í frumvarpinu varðandi nauðsyn þess að fella lögin úr gildi. Bent er á að það hljóti að teljast ótækt að „ætla sér að banna eitthvað mannlegt athæfi án þess að það sé skilmerkilega skilgreint og afmarkað en slík er einmitt raunin í núgildandi lögum, þar sem engin nothæf skilgreining er sett fram.“ BDSM á Íslandi er fræðslu- og hagsmunafélags BDSM-iðkenda.NordicPhotos/Getty Þá vill BDSM-félagið einnig vara við því að Ísland feti í fótspor og norska löggjafans, sem skilgreinir klám sem „kynferðislegt efni sem er misbjóðandi, sýnir manneskju í niðurlægjandi ljósi eða er ofbeldisfullt“ og gerir birtingu eða dreifingu á slíku efni refsiverða. Telur félagið að slík áferðarflokkun á kynferðisathöfnum sé algjörlega huglæg og því séþessi skilgreining ónothæf. „Það hefur sýnt sig að BDSM-klám er oft notað sem dæmi um slíkt „ofbeldisklám” og alveg horft framhjá því hvort að það komi fram að samþykki hafi legið fyrir og öll hlutaðeigandi hafi notið þess sem fram fór. Flokkun af þessu tagi er þvígagnslaus, ýtir undir neikvæðar staðalímyndir um BDSM og er gríðarlega jaðarsetjandi fyrir BDSM-fólk. Allt myndefni sem sýnir kynferðislegar athafnir fólks og virðist (samkvæmt huglægu mati þess sem á horfir) vera sett fram í þeim tilgangi að kveikja á eða kynda undir kynferðislegri löngun, getur kallast klám. Við sem samfélag höfum almennt viðurkennt að kynferðislegar langanir séu eðlilegar og að það sé ekki rangt eða á einhvern hátt fyrirlitlegt að stunda kynlíf sér til ánægju.“ Öflug kynfræðsla besta mótefnið Þá kemur fram í umsögninni að lög sem banna fólki að birta eða dreyfa myndefni af kynlífi, jafnvel eigin kynlífi, hljóta því að vera tímaskekkja. „Klám er ekki neikvætt fyrirbæri í eðli sínu. Það er ýmist tilraun til að festa kynlíf á filmu eða myndgera einhverja kynlífsóra fólks, óra sem geta verið eins misjafnir og við erum mörg. Klám sem er framleitt í þeim tilgangi að vera gróðavænleg söluvara er oftast mikið til skáldskapur og fantasía en ekki raunsönn endurspeglun á raunveruleikanum. Núgildandi lög voru samin á þeim tíma þar sem klámefni var prentað á pappír og var ætlað að ná yfir dreifingu á slíku efni. Þá bendir félagið á að í nútímasamfélagi geti hver sem er nálgast klámefni á einfaldan hátt og því sé sjaldnast dreift í pappírsformi. „Þessi lög hafa því afar takmarkað gildi ef nýta ætti þau til að takast á við dreifingu kláms á netinu, sem væri auk þess slagur við vindmyllur. Slíkt er illmögulegt nema með því að takmarka verulega allt aðgengi að veraldarvefnum, sem væri þá um leið óásættanleg aðför að upplýsingafrelsi.“
Hinsegin Klám Kynlíf Alþingi Píratar Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Fleiri fréttir Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent