„Okkar leið til að heiðra minningu okkar barna og allra barnanna sem fengu ekki að lifa“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 10. mars 2023 13:59 Þær Gréta Rut, Berta og Hildur standa fyrir hlaupaáskorun til styrktar samtökunum Gleym Mér Ei. Þær þekkja samtökin af eigin raun því þær deila allar þeirri lífsreynslu að hafa misst barn. samsett Berta Þórhalladóttir, Gréta Rut Bjarnadóttir og Hildur Grímsdóttir eru þrjár öflugar konur sem deila þeirri lífsreynslu að hafa misst barn. Nú í mars standa þær fyrir áskorun þar sem þær hvetja fólk til þess að hreyfa sig til styrktar samtökunum Gleym Mér Ei sem hafa reynst syrgjandi foreldrum dýrmæt á erfiðustu tímum lífsins.
Berta var búsett í Danmörku þegar hún varð ólétt árið 2016. Meðgangan gekk vel en þegar hún var gengin 34 vikur fór hún af stað. Um sólarhring síðar fæddist Theodór Nói. „Þá kemur í ljós að hann andar ekki,“ segir Berta. Strax eftir fæðinguna var farið með Theodór Nóa afsíðis og faðir hans fékk að fylgja honum á meðan Berta fæddi fylgjuna. „Svo eftir það er ég keyrð í hjólastól og þá tekur við mér það sem líktist atriði úr Gray's Anatomy. Það eru fimm læknar að reyna að pumpa barnið mitt. Pínulítill strákur liggur á borðinu og læknarnir standa yfir honum. Ég stend og bara frýs. Manni fannst þetta ótrúlega margir tímar.“ Hann hefði aldrei getað lifað Fjölskyldan var flutt á Ríkissjúkrahúsið í Danmörku þar sem Theodór Nói var settur í öndunarvél. „Þá kemur í ljós að hann var bara mjög nýrnaveikur. Hann hefði aldrei getað lifað því nýrun voru of stór og lungun náðu ekki að þroskast. Það var allt reynt.“ Theodór Nói var settur í kælivöggu og fengu foreldrarnir því þrjá dýrmæta daga með syni sínum. „Fjölskyldan okkar kom til okkar og við erum ótrúlega þakklát fyrir það, að þau hafi fengið að hitta hann og kynnast honum.“ „Svo labbar maður náttúrlega út af spítalanum með ekkert barn og það er mjög skrítin tilfinning. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um tímann sem tók þarna við. Maður var bara dofinn.“ „Við eigum annað barn þannig maður varð að vakna en ég var bara eins og draugur,“ segir Berta sem lýsir því hvernig hversdagslegir hlutir eins og að borða og baða sig urðu henni allt í einu mjög erfiðir. Berta segir hreyfingu hafa reynst sér vel þegar hún hefur þurft að glíma við erfiðleika í gegnum tíðina.Aðsend Stundum öskraði hún og grét á hlaupunum Berta segist alla tíð hafa nýtt sér hreyfingu sem ákveðið meðal þegar hún hefur þurft að glíma við erfiðleika í lífinu. „Við lendum í alls konar í lífinu og hreyfing hefur alltaf verið svona mitt akkeri. Þannig ég fór örugglega alltof snemma af stað í ræktina en það var bara mitt bjargráð.“ Berta byrjaði á því að finna sér nýja líkamsræktarstöð og byrjaði á því að stunda lyftingar. Á ákveðnum tímapunkti ákvað hún svo að byrja að fara út að hlaupa. Í hlaupunum segist Berta hafa fundið fyrir miklu frelsi. „Þá var ég bara ein og náttúran gerir svo mikið, að fá vindinn framan í sig. Stundum öskraði maður og grenjaði. Maður var bara einn með sjálfum sér og það var eitthvað svo mikið frelsi.“ Berta segist hafa öðlast nýja sýn á lífið eftir áfallið.Aðsend Vildu gefa til baka Eftir missinn segist Berta hafa öðlast algerlega nýja sýn á lífið. Líkamleg og andleg heilsa urðu hennar forgangsatriði. Hún ákvað að fylgja sinni ástríðu og menntaði sig sem bæði markþjálfi og einkaþjálfari. Fyrir ári síðan fékk Berta svo hugmynd. Hana langaði til þess að efna til hreyfingaráskorunar til styrktar samtökunum Gleym Mér Ei. Samtökin höfðu reynst henni vel eftir andlát Theodórs og nú fannst henni kominn tími til þess að gefa til baka. Í gegnum samtökin hafði Berta kynnst þeim Grétu Rut og Hildi Gríms. Gréta hafði misst son sin Hinrik Leó árið 2018 og Hildur hafði misst soninn Hergeir Þór árið 2019. Hinrik Leó, sonur Grétu Rutar, lést árið 2018.Aðsend Hergeir Þór, sonur Hildar, lést árið 2019.Aðsend Skora á fólk að fara 100 kílómetra í mars Berta vissi að þær væru báðar miklar hlaupakonur og ákvað hún því að fá þær til liðs við sig. Þær efndu til áskorunarinnar 100 km í mars - Til styrktar Geym Mér Ei. Hún felur það í sér að þátttakendur eru hvattir til þess að fara 100 kílómetra í marsmánuði, hvort sem það sé hlaupandi, gangandi, hjólandi eða syndandi. „Þátttakan var þvílíkt góð í fyrra og við náðum að safna alveg dágóðum pening. Það voru allir til í þetta. Það var nýbúið að vera Covid og það voru allir svo peppaðir í þetta.“ Nú er áskorunin farin af stað á ný og segir Berta öll vera velkomin. Hún segist gera sér grein fyrir því að 100 kílómetrar hljómi eflaust mikið fyrir einhverjum en hún hvetur þó öll til þess að taka þátt og gera sitt besta. „Ef þú fórst kannski 10 kílómetra síðast, reyndu þá að nýta þetta sem hvatningu og fara kannski 20 kílómetra núna. Ég er ekki að fara skamma neinn sem fer ekki 100 kílómetra. Þetta er meira bara hvatning fyrir fólk að hreyfa sig aðeins meira. Okkur veitir ekkert af því.“ Berta segir áskorunina hafa farið fram úr vonum á síðasta ári.Aðsend Hjálpa syrgjandi foreldrum að búa til fallegt augnablik Það kostar 3.000 krónur að taka þátt og rennur allur ágóði óskertur til samtakanna Gleym Mér Ei. Tilgangur Gleym Mér Ei er að vera til staðar fyrir þá sem verða fyrir missi á meðgöngu eða í/eftir fæðingu. Félagið heldur utan um styrktarsjóð sem notaður er til þess að styrkja málefni tengd barnsmissi. „Þau gefa foreldrum til dæmis mjög fallegan minningarkassa með alls konar hlutum í, bangsa, armband fyrir bæði þig og barnið og alls konar.“ „Það er náttúrlega ekkert huggulegt við að missa barnið sitt en það er verið að hjálpa foreldrum að búa til fallegt augnablik og minningu sem þú getur tekið með þér.“ Bertu, Grétu og Hildi finnst mikilvægt að gefa samtökum, sem reyndust þeim svo dýrmæt, til baka. Þær halda utan um Facebook-hópinn 100 KM í mars - Til styrktar Gleym mér ei! og lofa mikilli hvatningu. „Þetta er okkar leið til að heiðra minningu okkar barna og allra barnanna sem fengu ekki að lifa. Það er eitthvað svo fallegt við það að gefa af sér og í leiðinni hvetja fólk til að hreyfa sig. Þetta er win-win fyrir alla.“
Hlaup Börn og uppeldi Tengdar fréttir „Öll ástin kom, þó að hjartað hans hafi ekki slegið“ „Mér fannst ég strax sjá einhverja kunnuglega svipi og maður var að lesa í allskonar, hvernig puttarnir og tásurnar hans voru, og litli nebbinn,“ segir Hildur Grímsdóttir en hún var komin 25 vikur á leið með sitt þriðja barn þegar í ljós kom að það var enginn hjartsláttur. Litli drengurinn fékk nafnið Hergeir Þór. 15. febrúar 2023 07:00 Við svona áfall virðast allir draumar og vonir úti Berta Þórhalladóttir er á meðal þeirra sem hleypur tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun. Hún hleypur til styrktar samtökunum Gleym mér ei en Berta er ein þeirra sem hafa orðið fyrir því áfalli að missa barnið sitt. 19. ágúst 2022 14:13 Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira
„Öll ástin kom, þó að hjartað hans hafi ekki slegið“ „Mér fannst ég strax sjá einhverja kunnuglega svipi og maður var að lesa í allskonar, hvernig puttarnir og tásurnar hans voru, og litli nebbinn,“ segir Hildur Grímsdóttir en hún var komin 25 vikur á leið með sitt þriðja barn þegar í ljós kom að það var enginn hjartsláttur. Litli drengurinn fékk nafnið Hergeir Þór. 15. febrúar 2023 07:00
Við svona áfall virðast allir draumar og vonir úti Berta Þórhalladóttir er á meðal þeirra sem hleypur tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun. Hún hleypur til styrktar samtökunum Gleym mér ei en Berta er ein þeirra sem hafa orðið fyrir því áfalli að missa barnið sitt. 19. ágúst 2022 14:13