Fótbolti

Íslensku stepurnar töpuðu gegn Dönum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslenska U23 ára landslið kvenna mátti þola tap gegn Dönum í dag.
Íslenska U23 ára landslið kvenna mátti þola tap gegn Dönum í dag. KSÍ

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 23 ára og yngri mátti þola 3-1 tap er liðið mætti Danmörku í æfingaleik í dag.

Þær dönsku forystuna strax á 17. mínútu leiksins og aðeins þremur mínútum síðar var liðið búið að tvöfalda forystu sína.

Valskonan Ída Marín Hermannsdóttir minnkaði þó muninn fyrir íslenska liðið áður en hálfleiksflautið gall og staðan var því 2-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Danska liðið bætti svo þriðja markinu við þegar um fimm mínútur voru til leiksloka og þar við sat. Lokatölur 3-1, en liðin mætast aftur á páskadag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×