Sara Rún stigahæst þegar Faneza vann sigur í umspili Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2023 20:19 Sara Rún Hinriksdóttir leikur með Faenza. Vísir/Hulda Margrét Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar í Faneza unnu góðan sigur á Valdarno í umspili um sæti í efstu deild ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld.
Faenza lauk deildakeppninni í 10. sæti og lið Valdarno í 13. sæti og þurfa bæði lið að leika umspilsleiki um það hvaða lið heldur sæti sínu í efstu deild. Það lið sem fyrst vinnur tvo leiki sigrar í einvíginu en tapliðið mætir tapliði hins einvígisins í úrslitasæti um sæti í efstu deild. Faenza byrjaði betur í dag og leiddi 31-22 að loknum fyrri hálfleiknum. Sara Rún var að leika vel fyrir Faenza en í plús/mínús tölfræði leiksins sést að lið Faenza var að leika best þær mínútur sem Sara Rún var inni á vellinum. Hvort lið skoraði átta stig í þriðja leikhluta og Faenza því með átta stiga forskot að honum loknum. Í lokafjórðungnum bitu hins vegar gestirnir frá sér. Þær jöfnuðu metin í 47-47 og aftur 50-50 þegar tvær mínútur voru eftir. Báðum liðum misfórst í næstu sóknum en þegar rúmar 50 sekúndur voru eftir skoraði Sara Rún og kom Faenza í tveggja stiga forystu. Faenza skoraði svo úr víti og komst í 53-50 og bætti við tveimur stigum af vítalínunni skömmu síðar. Lokatölur 55-50 og Faenza því komið með forystu í einvígi liðanna. Sara Rún var stigahæst hjá Faenza í dag. Hún skoraði fimmtán stig á rúmum tuttugu og fjórum mínútum auk þess sem hún var lang hæst í plús/mínus tölfræði leiksins. Liðin mætast á nýjan leik á mánudag.
Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira