Fyrsta liðið síðan KA 2002 til að komast í oddaleik 2-0 undir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. maí 2023 10:31 Haukar 2023 og KA 2002 eru einu liðin í sögu úrslitakeppninnar sem hafa knúið fram oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvígi. vísir/hulda margrét/þórir tryggvason Haukar eru fyrsta liðið í 21 ár sem tryggir sér oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla.
Það blés ekki byrlega fyrir Haukum eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn ÍBV í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar voru þó ekki af baki dottnir og minnkuðu muninn í 2-1 með sigri í Eyjum á föstudaginn, 28-34. Strákarnir hans Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar fylgdu því svo eftir með því að vinna fjórða leik liðanna á Ásvöllum í fyrradag, 27-24. Haukar eru því aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir að hafa verið komnir með bakið þétt upp að veggnum fræga. Oddaleikur Hauka og ÍBV fer fram í Eyjum í kvöld. Síðan úrslitakeppnin var tekin upp tímabilið 1991-92 hefur það aðeins tvisvar sinnum gerst að lið komi til baka eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvígi. KA lenti 2-0 undir gegn Val í úrslitaeinvíginu 2002 en jafnaði metin og tryggði sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri í oddaleik í Valsheimilinu. Ekkert lið hafði síðan komið til baka úr 2-0 stöðu og knúið fram oddaleik þar til Haukar gerðu það í fyrradag. Þeir geta svo leikið sama leik og KA með sigri í Eyjum á morgun. Haukar hafa þegar brotið blað í sögu úrslitakeppninnar en þeir eru fyrsta liðið sem endar í 8. sæti deildakeppninnar til að komast í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar unnu aðeins níu leiki í Olís-deildinni en hafa þegar unnið sjö leiki í úrslitakeppninni. Þeir slógu Val út í átta liða úrslitum, 2-0, og Aftureldingu í undanúrslitunum, 3-2. Leikur ÍBV og Hauka hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 18:00.
Olís-deild karla Haukar ÍBV KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira