Fyrsta deitið var á nektarströnd með vinkonum hennar Íris Hauksdóttir skrifar 5. júlí 2023 17:01 Lalli töframaður naut sín á nektarströndinni. Lárus Blöndal Guðjónsson fjöllistamaður segir eitt af eftirminnilegustu augnablikum lífs síns hafa verið að fylgjast með nöktum síðmiðaldra manni fitla við typpalokk sinn. Lárus, eða Lalli eins og hann er alltaf kallaður var þar staddur með Heiðrúnu, þáverandi vinkonu sinni en núverandi eiginkonu ásamt vinkonum hennar á nektarströnd.
Lalli, er þekktastur undir listamannsnafninu Lalli töframaður. Eiginkona hans, Heiðrún Arna Friðriksdóttir, er viðskiptafræðingur og starfar sem aðstoðarmaður fjármálastjóra hjá fyrirtækinu Controlant. Hún hefur einnig fengist við viðburðastýringu og verkefnastjórn hjá Siðmennt. Lalli og Heiðrún spjölluðu um samband sitt í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn þar sem þau ræddu meðal annars hvernig þau hefðu kynnst en leiðir þeirra lágu saman í gegnum stefnumótaforrit. Fórum öll saman á nektarströnd Þegar talið barst að skemmtilegum atvikum tók Heiðrún orðið. „Þegar við fórum í fyrsta sinn saman til útlanda þá fékk ég að taka „vin minn“, Lárus, með í árshátíðarferð með CCP til Sitges á Spáni. 200 manna ferð og við vorum þarna nokkrir fararstjórar. Við Margrét Erla góðvinkona Lalla og tvær stelpur sem vinna með mér ákváðum að fara öll saman á nektarströnd. Þar fórum við öll úr fötum eðlilega og eftir á hugsa ég bara ha, gerði ég það bara. Að fara úr öllum fötunum með manni sem ég var ógeðslega skotin í með þrjár ógeðslega sætar vinkonur mínar með. Lárus var eini strákurinn og við bara fimm allsber saman. Þessi rassamynd er bara til ennþá. Ég hugsa þetta mjög oft.“ Heiðrún og Lárus eru nýjustu viðmælendur Ása í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn. aðsend Hvernig varst þú (Lalli) í þessum aðstæðum? Heiðrún grípur aftur orðið: „Lárus er svo frjáls með nekt sína honum fyndist helst að allar strendur ættu að vera nektarstrendur þannig þetta truflaði hann ekki neitt. Honum fannst ekkert eðlilegra. „Ég var fyrst og fremst glaður að þær skyldu vilja koma á nektarströnd,“ segir Lalli og bætir við. „Ég hugsaði bara takk fyrir að nenna því.“ Bannað að hlæja því allir voru allsberir „Við reyndar lentum í atviki þarna sem Margrét sagði líka í brúðkaupinu okkar um daginn,“ segir Heiðrún og heldur áfram. „Það var maður á bilinu 60-65 ára ára sem gekk um mjög stoltur, allsber um ströndina meðfram sjónum og það er náttúrulega bannað að taka myndir og video. Það er eiginlega bannað að hlæja þar sem allir eru allsberir. Fólk er misjafnt. Þetta var árið 2016 og ekki komnir airpods og allir með snúrur í eyrunum og hann heldur á Iphone-inum sínum og fer eitthvað að vesenast og við förum að pæla í því hvað hann sé eiginlega að gera. Þá hafði hann sem sagt flækt snúruna úr heyrnatólunum sínum í typpalokknum og er að reyna að losa hann úr með miklu brasi og við bara – hjálp enginn má hlæja. Horfa annað. En þetta var held ég það fyndnast sem við höfum öll upplifað.“ Þú ert bara á typpinu Lalli tekur hér við orðinu: „Þú ert bara að labba um með símann þinn í hendinni af því þú ert ekki með vasa af því þú ert bara á typpinu. Í þessari aðstöðu áttu ekki að geta flækt snúruna í neinu það eru engir rennilásar eða límbönd eða neitt sem gæti þvælst fyrir þér nema typpalokkurinn þinn. Þetta var með betri momentum í lífinu og var síðast rifjað upp í brúðkaupinu okkar við mikinn fögnuð.“ Viðtalið í heild má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.
Ástin og lífið Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira