Fjórðu kaup Tottenham í sumar staðfest Smári Jökull Jónsson skrifar 11. júlí 2023 17:31 Solomon í treyju númer 11 hjá Ísrael í landsleiknum á Laugardalsvelli á síðasta ári. Vísir/Hulda Margrét Tottenham hefur gengið frá kaupunum á vængmanninum Manor Salomon frá Shaktar Donetsk. Írsaelinn skrifar undir fimm ára samning við Lundúnaliðið.
Salomon eru fjórðu kaup Tottenham í sumar en félagið hafði áður samið við James Maddison, markvörðinn Guglielmo Vicario auk þess að ganga frá kaupum á Dejan Kulusevski sem hafði verið á láni hjá félaginu frá Juventus. Solomon er 23 ára gamall og lék með Fulham á síðasta tímabili þar sem hann skoraði fimm mörk í 24 leikjum. Hann hefur leikið 35 landsleiki fyrir Ísrael og skorað í þeim sjö mörk. Hann var í byrjunliði Ísraela sem mætti Íslandi á Laugardalsvelli fyrir rúmu ári síðan. Solomon nýtti sér sömu reglu og Arnór Sigurðsson gerði þegar hann fór til Norrköping á lán, með því að frysta samning sinn hjá Shaktar Donetsk. Þessi möguleiki var í boði fyrir leikmenn hjá rússneskum og úkraínskum liðum vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Tottenham endaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og náði ekki sæti í Evrópukeppni. Félagið réði knattspyrnustjórann Ange Postecoglu til starfa að tímabilinu loknu en hann hafði verið við stjórnvölinn hjá Celtic í Skotlandi síðustu árin. Þrátt fyrir að hafa styrkt liðið á síðustu vikum er stærsta áskorun Tottenham að reyna að halda fyrirliðanum Harry Kane hjá liðinu en hann hefur verið orðaður við ýmis félög síðustu vikur. Þá hefur Tottenham hafnað tveimur tilboðum frá þýsku meisturunum í Bayern Munchen í Kane.
Enski boltinn Mest lesið „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjá meira