Kolstad staðfestir alvarleg fjárhagsvandræði og launalækkanir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. júlí 2023 16:30 Dvöl ofurstjörnunnar Sanders Sagosen hjá Kolstad byrjar ekki vel. Vísir/EPA Nýríka norska handboltafélagið Kolstad virðist ekki vera svo ríkt eftir allt saman. Félagið hefur staðfest að það eigi í fjárhagserfiðleikum og ráðast þurfi í niðurskurð.
Í gær bárust fregnir af því að fjárhagsstaða Noregsmeistara Kolstad sé slæm og félagið þurfi að grípa til verulegra launalækkuna. Talað var um að leikmenn þurfi að taka á sig þrjátíu prósent launalækkun vegna næsta tímabils og tuttugu prósent launalækkun vegna tímabilsins 2024-25. Kolstad hefur nú staðfest þessar fregnir. Félagið segir að illa hafi gengið að afla tekna og utanaðkomandi aðstæður hafi haft áhrif á fjárhaginn. Meðal þeirra eru veiking norsku krónunnar, verðbólga og áhrif stríðsins í Úkraínu. Íslensku landsliðsmennirnir Sigvaldi Guðjónsson og Janus Daði Smárason leika með Kolstad sem varð þrefaldur meistari í Noregi á síðasta tímabili. Liðið var svo úthlutað sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir næsta tímabil. Ekki er langt síðan þrjár af stærstu stjörnum norska landsliðsins gengu í raðir Kolstad, þar á meðal Sander Sagosen, einn besti leikmaður heims. Einnig eru Magnus Rød og Gøran Johannessen komnir til Kolstad. Þjálfari liðsins er Christian Berge sem var lengi þjálfari norska karlalandsliðsins og var sterklega orðaður við það íslenska.
Norski handboltinn Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir EM í dag: Meira EHF bras og Danir í forgangi Segir Dag hafa beðist afsökunar Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Svaf yfir sig og missti af rútunni „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Gróf stríðsöxina við framkvæmdastjóra EHF Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari? Sjáðu myndirnar: Blá krækiber í helvíti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt „Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“ EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir „Við reyndum og það bara gekk ekki“ Tap hjá Mikael eftir mikla dramatík og marga VAR dóma Einkunnir Strákanna okkar á móti Danmörku: Hetjuleg frammistaða gegn heimsmeisturunum „Margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ Tölurnar á móti Dönum: Danir náðu fjörutíu stoppum og fjögur vítaklúður „Ætla ekkert að fara að fela mig á bak við það“ „Þetta svíður en við gáfum þeim alvöru leik“ Danmörk - Ísland 31-28 | Strákarnir okkar spila um bronsið „Ég hugsa að þetta sé EM-met“ „Held að ég hafi sagt allt sem ég ætlaði að segja“ Sigvaldi verður ekki með í kvöld Alfreð í úrslitaleikinn eftir sigur á Degi „Við munum þurfa eitthvað extra til að vinna“ Sjá meira