Fótbolti

Hákon Arnar meiddist

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Meiðsli Hákons Arnars Haraldssonar eru vonandi ekki alvarleg.
Meiðsli Hákons Arnars Haraldssonar eru vonandi ekki alvarleg. Getty/Franco Arland

Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson fór meiddur af velli í frönsku deildinni í fótbolta í dag þegar Lille gerði 1-1 jafntefli við Mónakó á útivelli.

Hákon fór af velli á 80. mínútu en sex mínútum fyrr hafði Mónakó jafnað metin í 1-1. Lille missti Tanguy Nianzou af velli með rautt spjald á 66. mínútu.

Ethan Mbappé hafði komið Lille í 1-0 á 24. mínútu leiksins.

Hákon meiddist á mjöðm í september og missti þá af einum leik Lille. Hann hefur spilað ellefu leiki með Lille í deild og Meistaradeild á leiktíðinni.

Lille hefur ekki gefið það út hversu alvarleg meiðslin eru en það er búist við því að það skýrist frekar þegar hann hefur gengist undir nánari skoðun.

Íslenska landsliðið spilar næst í næsta mánuði og Hákon spilar þar lykilhlutverk. Vonandi verður hann búinn að ná sér fyrir það verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×