Njarðvík bætir við sig danskri landsliðskonu sem þekkir Ísland vel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2023 14:45 Emilie Sofie Hesseldal fagnar hér bikarmeistaratitli með Skallagrími þegar hún lék síðast á Íslandi árið 2020. Vísir/Daníel Þór Danska körfuboltakonan Emilie Sofie Hesseldal hefur ákveðið að snúa aftur til Íslands en hún hefur náð samkomulagi um að spila með Njarðvík á komandi tímabili í Subway deild kvenna.
Hesseldal er ekki aðeins dönsk landsliðskona heldur hefur hún orðið tvisvar danskur meistari eftir að hún yfirgaf Ísland síðast vorið 2020. Hesseldal hefur spilað bæði með IK Eos í Svíþjóð og í Ástralíu á þessu ári eftir að hafa yfirgefið AKS Falcon sumarið 2022, þá sem tvöfaldur meistari tvö ár í röð. „Hesseldal þekkir íslensku deildina eftir að hafa leikið með Skallagrím þar sem hún hjálpaði þeim að verða bikarmeistarar og þá var hún einnig á meðal bestu leikmanna deildarinnar þetta tímabilið,” sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, í viðtali við heimasíðu Njarðvíkur. Hesseldal var með 17,0 stig, 13,8 fráköst og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í leik neð Skallagrími tímabilið 2019-20. Hesseldal er mjög reyndur leikmaður sem hefur reynt fyrir sér í Danmörku, Portúgal, Íslandi og Svíþjóð eftir að hún lauk háskólanámi. Hún hefur verið frákastahæsti leikmaður deildarinnar í öllum deildum þar sem hún hefur leikið og var leikmaður ársins í dönsku deildinni 2022 og í tvígang valin besti leikmaður úrslitanna í Danmörku. Hesseldal er fjórði erlendi leikmaður kvennaliðs Njarðvíkur því áður hafði félagið samið við Tynice Martin frá Bandaríkjunum, Andela Strize frá Króatíu og Ena Viso frá Danmörku.
Subway-deild kvenna UMF Njarðvík Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira