Nýr leikur liður í því að bjarga íslenskunni Eiður Þór Árnason skrifar 11. ágúst 2023 16:53 Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður og stofnandi Miðeindar, telur leikinn höfða til breiðs hóps fólks. Vísir/Miðeind Nýr orðaleikur gerir fólki kleift að leika sér með íslenskuna og styðja um leið við þróun íslenskrar máltækni. Explo byggir á grunni Netskraflsins sem hefur notið vinsælda á Íslandi en nú stendur til að fara í útrás og bjóða upp á sambærilegan leik á öðrum tungumálum.
Leikurinn er þróaður af sprotafyrirtækinu Miðeind sem lýsir honum sem nútímalegri útgáfu af sígildum krossgátuorðaleikjum á borð við skrafl þar sem stöfum er raðað saman til að mynda orð. Miðeind hefur á síðustu árum unnið að þróun fjölmargra máltæknilausna á borð við raddþjóninn Emblu, málrýniþjónustuna Yfirlestur, sjálfvirkar tungumálaþýðingar og gervigreind sem getur flokkað og unnið íslenskan texta. Til stendur að nota tekjur af nýja leiknum í áframhaldandi þróun á máltækni og gervigreind. Netskraflið hefur notið mikilla vinsælda.Miðeind Explo hefur verið í þróun í um tvö ár og kom út í prufuútgáfu fyrr í sumar. Fullþroskuð útgáfa lítur nú dagsins ljós og er aðgengileg bæði í Apple App Store og Google Play Store fyrir Android- og iOS-tæki á borð við síma frá Samsung og Apple. Frá árinu 2015 hefur Miðeind gefið út Netskraflið sem á bilinu átta til tíu þúsund manns spila að jafnaði í hverjum mánuði, að sögn fyrirtækisins. „Okkur datt það í hug hreinlega að prófa að búa til app-útgáfu af Netskraflinu og prófa að fara með það ekki bara á íslenskan markað heldur alþjóðlegan markað,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður og stofnandi Miðeindar, í samtali við Vísi. Hægt er að keppa við fjóra mismunandi þjarka. Miðeind Uppfærðu enska stafapokann Explo verður í fyrstu hægt að spila á íslensku, ensku og pólsku en til stendur að bæta við fleiri tungumálum í náinni framtíð. Explo er einn af fáum orðaleikjum sem hægt er að spila á íslensku í snjalltækjum en mikið úrval er af svipuðum leikjum á ensku og öðrum tungumálum. Vilhjálmur telur framlag þeirra búa yfir vissri sérstöðu sem muni höfða til skrafláhugafólks um heim allan. Til að mynda hafi verið útbúinn nýr stafapoki fyrir ensku sem talinn er vera betur í samræmi við nútímamál og gera leikinn skemmtilegri. „Þessi stafapoki sem fólk þekkir úr ensku skrafli var búinn til af Alfred Butts einhvern tímann í kringum 1940 eða fyrir það. Hann er ekki alveg nægilega réttur fyrir tungumálið þannig að við settum þetta allt í tölvuhermi og reiknuðum út besta mögulega enska skraflpokann. Það er ákveðin nýjung í því fólgin sem við vonum að enskumælandi skraflarar taki vel,“ segir Vilhjálmur en Miðeind hafði áður endurnýjað íslenska stafapokann með svipuðum hætti fyrir Netskraflið. Bæði er hægt að spila leikinn á eigin hraða eða með tímatakmörkunum.Miðeind Vilhjálmur segir það einnig vera sérstöðu að notendur Explo geti spilað leikinn frítt án þess að þurfa að þola auglýsingar. „Það eru engar dettandi fjarsjóðskistur eða springandi demantar, þetta er bara fallegt og einfalt útlit sem truflar þig ekki, og leyfir einbeitingu.“ Þá sé í boði að gerast áskrifandi til að fá vissa viðbótarmöguleika. „Þá getur maður haft fleiri viðureignir í gangi samtímis, notað svokallaðan keppnisham í appinu og svo getur maður líka fengið svona yfirlit í lok hverrar viðureignar þar sem maður getur skoðað allt sem gerðist í viðureigninni og hvað ég hefði getað gert í þeirri stöðu og hvort maður hefði getað lagt eitthvað betra niður,“ segir Vilhjálmur og bendir á að um sé að ræða virkni sem notendur Netskraflsins kannist nú þegar margir við. Vinsældir orðaleikja að aukast Í Explo er ýmist í boði að spila leiki einn, með eða án klukku, við andstæðinga eða við þjarka. Þá safna notendur ELO-stigum líkt og í skák eða Netskraflinu sem gefa til kynna hversu sterkur spilarar þeir eru. Hægt er að spila við fjóra mismunandi þjarka sem fara frá því að vera nokkuð auðveldir í að vera „svínslega erfiður,“ að sögn Vilhjálms. Nokkrar vendingar hafa orðið í heimi orðaleikja á síðustu árum en vefleikurinn Wordle sló rækilega í gegn árið 2021 og var síður keyptur af bandaríska stórblaðinu The New York Times. „Ég held að það komi nánast fólki á óvart hvað þetta er sterkur markaður og einhvern veginn lætur ekki á sjá og er jafnvel frekar vaxandi heldur en hitt. Vinsældir Wordle komu mörgum á óvart en þetta virðist bara vera tegund af afþreyingu sem er líka heilaleikfimi sem mörgum líkar,“ segir Vilhjálmur. Markhópur leikjanna hafi lengi verið aðeins eldri samanborið við aðra símaleiki en Wordle hafi sýnt að yngra fólk hafi ekki síður áhuga á slíkri afþreyingu. Engar auglýsingar eru í nýja leiknum. Miðeind Hjálpa til við að bjarga íslenskunni Lengst af hefur Miðeind fengið megnið af tekjum sínum frá íslenska ríkinu í gegnum máltækniáætlun sem er ætlað að fjármagna þróun á íslenskri máltækni. Síðasta árið hefur fyrirtækið í auknum mæli sótt fjármagn til fyrirtækja sem vilja nota tækni Miðeindar í sinni þjónustu. „Við erum til dæmis með stórt samvinnuverkefni við Íslandsbanka og önnur smærri verkefni sem verið er að vinna með fyrirtækjum og svo erum við jafnframt að undirbúa það að geta veitt almenningi þjónustu,“ segir Vilhjálmur. Á teikniborðinu sé til að mynda ný málrýniþjónusta sem les yfir málfar og stafsetningu en Miðeind hefur lengi boðið upp á slíkt með Yfirlestri. Margrætt hefur verið um þá ógn sem íslensku máli stafi af örri tækniframþróun sem geri fólki kleift að stýra tölvum og tækjum með töluðu máli og skrifuðum fyrirmælum. Hafa stjórnvöld og fræðimenn lagt áherslu á að fjárfest verði í máltækni til að bjarga örmálinu og tryggja að íslenska verði áfram nothæf á öllum sviðum lífsins til framtíðar. Vilhjálmur segir óhætt að fullyrða að með því að spila Explo og gerast áskrifandi sé fólk að leggja þeirri baráttu lið. „Okkur finnst þetta vera skemmtileg leið til að hafa gaman, æfa heilann og styðja gott málefni í leiðinni. Það er svona heildarhugsunin á bak við þetta.“
Tækni Íslensk tunga Mest lesið „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ Atvinnulíf Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Viðskipti innlent Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Viðskipti innlent Bein útsending: Framsýn forysta Viðskipti innlent Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Viðskipti innlent Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Viðskipti innlent Sexfölduðu veltuna á einu ári Viðskipti innlent Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Viðskipti innlent „Prófaðu að segja við AI: Ókei, ég vil að þú hjálpir mér í vinnunni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Sjá meira