Hiti yfir tuttugu stig í Reykjavík í fyrsta sinn í sumar Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. ágúst 2023 19:06 Það var blessuð blíðan í Reykjavík í dag. Vísir/Vilhelm Hitinn fór yfir tuttugu gráður í Reykjavík í dag og er það í fyrsta sinn sem það gerist í sumar. Líkur á tuttugu stiga hita í Reykjavík eru almennt litlar en minnka ört eftir miðjan ágúst. Í Garðabænum náði hitinn 22,3 gráðum.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur, greindi frá hitanum á Facebook-síðu sinni Hungurdiskum. Í færslunni segir að þetta sé ekki aðeins í fyrsta skiptið í sumar sem hitinn fer yfir tuttugu stig heldur í fyrsta skiptið í tvö ár. Þá rifjar hann upp að einu sinni liðu sextán ár án þess að hiti næði tuttugu stigum í Reykjavík. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur sérstaklega áhyggjur af samfellu úrkomumælinga í Reykjavík við flutning veðurmæla.Vísir Trausti segi að líkur á svo miklum hita séu ekki miklar og þær minnki eftir því sem líður á ágúst. Hann minnist þess þó þegar hitinn náði tuttugu stigum þann 25. ágúst árið 2015. Aðeins er vitað um eitt ár með tuttugu stiga hita í Reykjavík sem mældist síðar á sumrinu. Það var árið 1939 þegar hiti fór í tuttugu stig bæði 31. ágúst og 3. september. Trausti nefnir þó að eldri mælingar séu ekki alveg samanburðarhæfar við nútímann vegna þess að mælarnir voru bæði nær jörðu og ekki í skýli. Kólnar á morgun en svipað veður næstu daga eftir það Elín Björk Jónasdóttir, vakthafandi veðurfræðingur, staðfesti það við Vísi að hitinn hefði farið hefði yfir tuttugu stig í Reykjavík og nágrenni. Hún sagði að í Garðabænum hefði hitinn náð 22,3 gráðum og rúmlega 21 gráðu í Víðidal, suður af Elliðaárdal. Utan höfuðborgarsvæðisins hefði hitinn náð 23 gráðum á Hellu. Ágúst hefur verið nokkuð hlýr í ár.Vísir/Vilhelm Veðrið verður ekki alveg jafn gott á morgun og það var í dag. „Það kólnar á morgun með norðanátt og fer kannski að rigna. Það rignir á Norðurlandi á morgun og vestantil annað kvöld,“ sagði Elín um morgundaginn. „Svo er nú frekar svipað veður áfram, þriðjudag til fimmtudags, norðanátt og skýjað á norðan- og austanverðu landinu en bjartviðri hérna suðra. Það verður hlýtt aftur þá. Þannig það er alveg til þess að gera blíðu fram undan,“ sagði hún. „Svo er útlit fyrir að það verði hressileg rigning næstu helgi en mjög hlýtt. En það er enn svolítil óvissa með það,“ sagði Elín að lokum.
Veður Reykjavík Garðabær Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Sjá meira