Edda Lovísa hætt á OnlyFans eftir hótanir og eigið markaleysi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. september 2023 10:00 Edda Lovísa Björgvinsdóttir er nýjasti gestur í Einkalífinu á Vísi. Hún segir að þeir sem skrái sig á OnlyFans verði að vera reiðubúnir undir það að sambönd sín á milli þeirra og fjölskyldu þeirra og vini geti slitnað eða orðið skrítin. Vilhelm Edda Lovísa Björgvinsdóttir er hætt að framleiða klám á OnlyFans. Hún segist ekki geta farið lengur ein niðrí bæ og þá hefur hún þurft að flytja eftir að áskrifandi á síðunni komst að því hvar hún átti heima. Hún segist hafa verið hætt að virða eigin mörk.
Þetta kemur fram í Einkalífinu þar sem Edda Lovísa er gestur. Edda steig fyrst fram fyrir tveimur árum síðan í Ísland í dag þar sem hún ræddi reynslu sína af því að selja myndefni á OnlyFans. Í nýjasta þætti Einkalífsins ræðir Edda Lovísa æskuna, hvernig það var að alast upp í einni þekktustu leiklistarfjölskyldu Íslands, árin á OnlyFans og reynsluna af miðlinum sem varð til þess að hún ákvað að hætta. Þáttinn í heild sinni má horfa á hér fyrir neðan. Klippa: Einkalífið - Edda Lovísa Björgvinsdóttir Hörð á því að virða eigin mörk „Þegar ég var nýbyrjuð þá var þetta allt svo spennandi. Það fylgdi þessu peningur og athygli og þetta var allt mjög heillandi. En því lengur sem maður er á þessu því dýpra sekkur maður einhvern veginn og maður fer að hætta að virða sín eigin mörk.“ Edda segist hafa tapað sér í því að gera hluti sem sér hafi fundist óþægilegir til þess að halda áfram að afla peninga á síðunni. Hún segist hafa verið hörð á því þegar hún byrjaði á síðunni fyrir þremur árum síðan að hún myndi virða sín mörk. „Þetta er um mig og minn líkama. Ég stjórna honum, ég geri það sem ég vil, en ég var hætt að virða það. Þannig að ég ákvað að fyrst ég væri komin þangað að þá væri kominn tími á að hætta. Þetta var farið að hafa áhrif á geðheilsu mína og mig langaði ekki að gera þetta, en þurfti samt að borga leigu. Þá var þetta allt í einu orðið allt það sem fólk segir að þetta sé.“ Edda Lovísa segist styðja þær stelpur sem þegar séu á OnlyFans en vill að þær sem ekki eru þar en íhugi þar, geri sér grein fyrir því hvað því fylgi. Hún segir framleiðsluna fyrir OnlyFans hafa verið orðin að vinnu sem hún hafi hatað. Það hafi reynt mikið á geðheilsuna að framleiða nýtt efni. „Þetta tekur á á allt annan hátt en önnur vinna. Þetta tekur á spiritjúallí og á geðheilsuna og ef maður fer ekki varlega þarna þá getur þetta gleypt þig og þú getur gleymt því hvað þú stendur fyrir í þessu.“ Mælir ekki með OnlyFans en styður samfélagið Edda segir að hún sé ekki alfarið sammála þeim sem gagnrýnt hafi OnlyFans. Hún styðji enn OnlyFans samfélagið á Íslandi en segist samt ekki geta mælt með því við neinn að skrá sig. „Ég feta svolítið milliveginn í þessu. Ég myndi ekki mæla með þessu. Ef einhver stelpa segir mér að hún sé að pæla í að byrja á OnlyFans - ekki gera það, nema þú sért tilbúin í þetta, og þetta, A, B, C D, því þegar þú byrjar á Onlyfans þá er eiginlega engin leið til þess að taka það til baka.“ Hvað þarf fólk að vera tilbúið í ef það ætlar að byrja á OnlyFans? „Eins og ég, ég mætti ekki fara ein niður í bæ. Ever. Maður fær skilaboð þar sem einhver segir þér hvað hann ætli að gera við þig ef hann sér þig niðrí bæ. Ég hef fengið þannig skilaboð.“ Hótanir? „Já, bara hótanir. Karlmenn að segja: „Ef ég myndi sjá þig niðrí bæ, þá myndi ég taka þig.“ Þannig að ókei, ég get ekki farið niður í bæ. Ég get ekki farið ein út á kvöldin eitthvert, út af því að ég var þessi public klámstjarna.“ Edda segir að þeir sem skrái sig á OnlyFans verði að vera reiðubúnir undir það að sambönd sín á milli þeirra og fjölskyldu þeirra og vina geti slitnað eða orðið skrítin. Ekki sé víst að allir, amma og afi, sætti sig við að barnabarnið sé að framleiða klám. „Það er svo mikið sem maður hugsar ekki um þegar maður byrjar sem maður verður að hugsa um. Ertu tilbúinn í það að þetta sé á netinu? Þetta verður alltaf þar, sama hverju þú eyðir. Þú setur þetta þangað og þetta er bara þarna.“ Edda segist hafa verið hrædd við að vera ein heima hjá sér á tímabili. Sé viðkomandi í vinnu þurfi hann einnig að vera tilbúinn í það að fólkið sem hann vinni með viti af þessu. Sé jafnvel búið að skrá sig hjá honum og sjá hann. „Þetta er svo viðkvæm staða til þess að vera í. Hugsaðu þig fimm sinnum, tíu sinnum áður en þú byrjar. Ekki vera hvatvís og byrja á OnlyFans. Skoðaðu þetta, lestu þér til um hvað þetta þýðir að búa til klám.“ Áskrifandi vissi hvar hún átti heima Edda segist hafa fengið þó nokkur skilaboð með hótunum. Þar hafi verið á ferðinni nafnlausir aðilar, oft á samfélagsmiðlinum Instagram. „Ég þurfti að flytja. Það var einn sem fann heimilisfangið mitt og sagði bara: „Ég veit hvar þú átt heima. Það fannst mér mjög ógnvekjandi,“ segir Edda. Fluttirðu þá bara? „Ég flutti. Ég þurfti bara að flytja. Það var einhver sem var að horfa á mig á OnlyFans sem vissi hvar ég átti heima. Á þessum tímapunkti bjó ég ein og mér fannst ég ekki örugg lengur. Svo ég flutti bara.“ Var það ekkert mál? „Það var ógeðslega mikið mál. En til að passa upp á mig, þá var það ekkert mál. Það var auðvelt að droppa einhverri íbúð og fara eitthvert annað af því að einhver vissi hvar ég ætti heima. Ég var frekar til í að fara í gegnum það að flytja eitthvert frekar en að vera hrædd heima. Af því að ég var bara hrædd heima hjá mér. Ef einhver bankaði, þá var ég stressuð.“ Brot úr þættinum má sjá hér fyrir neðan, þáttinn í heild sinni má sjá ofar í greininni eða í sjónvarpi Vísis. Pældi lengi í því að hætta Edda segir að hún hafi verið að íhuga að hætta framleiðslu á efni fyrir OnlyFans í rúm hálft ár áður en hún hafi tekið ákvörðun um það fyrir tæpum þremur mánuðum síðan. Hún segist fyrst hafa verið hrædd um lífið eftir OnlyFans. View this post on Instagram A post shared by Edda Lovisa (@eddalovis) „Ég var hrædd. Að hætta einhverju svona er erfitt, af því að þetta er svo „auðvelt.“ Ég var búin að koma mér upp vinnu sem ég gat gert heima, hvar sem er. Það var erfitt að sætta sig við að þurfa mögulega að gera eitthvað annað og ég var hrædd. Hvað ef ég get það ekki?“ Edda segist hins vegar hafa upplifað gríðarlegan létti þegar hún hafi hætt á síðunni. Líkt og þungu fargi væri af sér létt. „Ég þarf ekki að gera þetta lengur. Ekki það að ég hafi einhvern tímann þurft að gera þetta, en bara það að ég leyfði sjálfri mér að hætta einhverju sem ég vildi ekki gera lengur. Það var rosalegur léttir og allt í einu gat ég bara andað. Það var ekki þessi pressa að gera eitthvað sem mig langaði ekki að gera lengur.“ Vill ekki vera notuð sem dæmi Edda ítrekar að þetta sé ákvörðun sem hver og einn þurfi að taka fyrir sig. Hún sé sátt við sína ákvörðun, þó hún styðji þær stelpur heilshugar sem enn séu á síðunni. „Þetta er bara ákvörðun sem ég tók fyrir mig. Ég er sátt við hana. Allir sem íhuga þetta eða eru á þessu, þau þurfa bara að taka ákvörðun fyrir sig.“ Edda Lovísa er fyrsti gestur í nýrri seríu af Einkalífinu. Þar fer hún um víðan völl og talar meðal annars um reynslu sína af Only Fans.Vísir Edda segist hafa hugsað sig lengi um það hvort hún vildi segja frá sinni reynslu opinberlega. Hún vill þó ekki vera notuð sem dæmi um það hve slæmt OnlyFans sé. „Ég hef hugsað þetta mjög lengi. Langar mig að segja eitthvað? Langar mig að segja frá þessari hlið? En það er enginn annar að gera það. Ég vil ekki vera I told you so manneskjan.“ Hún segir fullt af stelpum líða vel á OnlyFans. Sér þyki það flott og segist hún styðja þær í því. Þar séu hins vegar á ferðinni sérstakar týpur með sérstakan kraft. „Ég mun alltaf styðja fólkið mitt. Þetta er ennþá mitt samfélag þetta fólk, ég var partur af þessu samfélagi lengi og ég vil að þau séu með réttindin og að þau sem eru hamingjusöm í þessu, að þau sé studd og að það sé haldið utan um þau. En fólk sem er ekki byrjað í þessum bransa, það verður að passa sig. Það er bara þannig. Ég myndi ekki mæla með þessu.“ Þáttinn má horfa á í sjónvarpi Vísis.
Einkalífið OnlyFans Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Fleiri fréttir Úr lokaþætti Blóðbanda: Fann blóðföðurinn út frá magatilfinningu Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Sjá meira