Allir titlarnir í sögu úrslitakeppninnar hafa unnist í sófanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2023 13:31 KR-ingar stóðu heiðursvörð fyrir nýkrýnda Íslandsmeistara Blika í fyrra. Vísir/Diego Víkingar urðu í gær þriðja liðið á síðustu fjórum árum sem verður Íslandsmeistari í sófanum í úrvalsdeild karla í fótbolta.
Blikar í fyrra og Valsmenn haustið 2020 fögnuðu líka Íslandsmeistaratitlinum utan vallar eftir hagstæð úrslit í öðrum leikjum deildarinnar. Það sem meira er að báðir titlar Bestu deildarinnar í sumar unnust í sófanum og síðan að úrslitakeppnin var tekin upp, í fyrra hjá körlunum og í ár hjá konunum, hafa allir titlarnir í sögu hennar hafa unnist í sófanum. Valskonur urðu nefnilega líka Íslandsmeistarar í sófanum í sumar. Þær voru líka eins og Víkingar orðnar Íslandsmeistarar þótt að þær ættu eftir að spila fjóra leiki. Kvennaliðs Vals var því líkt og karlalið Víkinga búið að stinga af þegar kom inn í úrslitakeppnina. Þær urðu síðan meistarar, daginn fyrir sinn leik í annarri umferð úrslitakeppninnar, eftir að Blikum mistókst að vinna Þór/KA. Stjörnukonur stóðu því heiðursvörð fyrir leik þeirra á móti Val daginn eftir en Stjarnan endaði á því að vinna nýkrýnda Íslandsmeistara í leiknum. Í fyrra fönguðu Blikar Íslandsmeistaratitli sínum fyrir framan sjónvarpið á Kópavogsvelli. Þeir höfðu unnið 2-1 sigur á KA á Akureyri tveimur dögum fyrir leik Stjörnunnar og Víkings. Víkingar urðu að vinna í Garðabænum til að eiga enn möguleika á titlinum en Stjarnan vann leikinn 2-1 og tryggði Blikum titilinn. KR-ingar stóðu heiðursvörð fyrir Blika í næsta leik og enduðu síðan á því að vinna nýkrýnda Íslandsmeistara 1-0. Samkvæmt þessari upptalningu verður að teljast frekar líklegt að Blikar vinni 1-0 sigur á Víkingum í kvöld en augu knattspyrnuáhugafólks verður örugglega á Kópavogsvelli í kvöld þegar erkifjendurnir mætast.
Besta deild karla Besta deild kvenna Valur Víkingur Reykjavík Breiðablik Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira