Formúla 1

Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár

Sindri Sverrisson skrifar
Lewis Hamilton brosti sínu breiðasta í Mexíkó í kvöld.
Lewis Hamilton brosti sínu breiðasta í Mexíkó í kvöld. Getty/Bryn Lennon

Lewis Hamilton sýndi hvað enn er í hann spunnið þegar hann varð efstur í tímatökum fyrir Mexíkókappaksturinn í Formúlu 1. Hamilton, sem er 41 árs gamall, bætti þar með metið sitt yfir það að hafa oftast verið á ráspól en hann hefur þurft að bíða lengi síðan síðast.

Þetta verður í fyrsta sinn sem að Hamilton verður á ráspól frá því að hann gekk til liðs við Ferrari, í 43. keppninni.

Raunar hefur Hamilton ekki verið á ráspól síðan fyrir þremur árum og þremur mánuðum, í Ungverjalandskappakstrinum árið 2023. 

Þetta er hins vegar í 105. sinn sem þessi sjöfaldi heimsmeistari verður á ráspól og er hann sá elsti til að ná á ráspól síðan að Mario Andretti hjá Ferrari náði því árið 1982 eða fyrir 44 árum síðan.

Niðurstaðan breytir því ekki að allt bendir til þess að Kimi Antonelli, helmingi yngri en Hamilton, landi sínum fyrsta heimsmeistaratitli annað kvöld en hann er aðeins tveimur stigum frá titlinum. Antonelli varð í 5. sæti í tímatökunum í kvöld og þarf allt að fara úrskeiðis á morgun svo að hann fagni ekki titlinum en þá ætti hann hvort sem er fjórar keppnir til góða.

George Russell, félagi Antonelli hjá Mercedes, varð í 2. sæti í tímatökunum í kvöld, Charles Leclerc þriðji og Max Verstappen fjórði. Russell var aðeins 9/1000 úr sekúndu á eftir Hamilton.

Hamilton og Russell eru þeir einu sem geta enn fræðilega séð náð Antonelli en Ítalinn ungi er með 365 stig, Russell 242 og Hamilton 241.

Mexíkókappaksturinn verður á Sýn Sport Viaplay annað kvöld og hefst bein útsending klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×