„Það er gengið í skrokk á honum leik eftir leik“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. september 2023 08:00 Heimir Guðjónsson á hliðarlínunni í Víkinni í gær. vísir/hulda margrét Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir Kjartan Henry Finnbogason, framherja liðsins, ekki fá sanngjarna meðferð frá dómurum landsins.
FH tapaði fyrir Víkingi, 2-1, í 25. umferð Bestu deildar karla í gær. FH-ingar komust yfir með marki Björns Daníels Sverrissonar á 31. mínútu og voru með forystu í hálfleik. Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik þyngdist róður FH þegar Ástbjörn Þórðarson var rekinn af velli. Víkingar nýttu sér liðsmuninn, skoruðu tvö mörk á fjórum mínútum undir lokin og tryggðu sér sigurinn. Kjartan Henry var í byrjunarliði FH og lék fyrstu 72 mínútur leiksins Í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn kvartaði Heimir yfir meðferðinni sem framherjinn hefur fengið í sumar. „Kjartan Henry er klókur og ég hef engar áhyggjur af honum,“ sagði Heimir er hann var spurður út í gula spjaldið sem Kjartan Henry fékk fyrir að sparka boltanum í burtu í seinni hálfleik. „En ef þú tekur sumarið í sumar með Kjartan Henry þá er þetta náttúrulega bara orðin einhver vitleysa. Ég meina það er gengið í skrokk á honum leik eftir leik og hann fær einstaka sinnum aukaspyrnu. Svo má hann ekki pípa á menn þá er dæmd aukaspyrna á hann. Þetta er búið að ganga svona núna í allt sumar og það er bara alveg ótrúlegt að fjölmiðlar skuli ekki hafa fjallað um þetta og ótrúlegt að það skuli ekki hafa verið tekið á þessu.“ Kjartan Henry gekk í raðir FH frá KR fyrir tímabilið. Hann hefur skorað níu mörk í Bestu deildinni og er markahæsti leikmaður Fimleikafélagsins í sumar. FH er í 5. sæti Bestu deildarinnar með 37 stig, þremur stigum frá Stjörnunni sem er í 4. sætinu sem gefur þátttökurétt í Sambandsdeild Evrópu á næsta tímabili.
Besta deild karla FH Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira