Dramatík þegar Girona jafnaði Real á toppnum Smári Jökull Jónsson skrifar 3. janúar 2024 22:34 Girona vann frábæran sigur á Atletico Madrid í kvöld. Vísir/Getty Girona er aftur jafnt Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-3 sigur á Atletico Madrid í kvöld. Sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Það vantaði ekki fjörið í leik Girona og Atletico Madrid í kvöld. Fyrr í kvöld komst Real Madrid þremur stigum fram úr Girona á toppi deildarinnar eftir sigur á Mallorca en spútnikliðið fékk tækifæri til að jafna stórveldið að stigum með sigri á Atletico Madrid sem var í 3. -4. sæti fyrir leikinn. Eins og áður segir vantaði ekki fjörið. Valery kom heimamönnum í Girona í 1-0 strax á 2. mínútu leiksins en Alvaro Morata var búinn að jafna í 1-1 tólf mínútum síðar. Savio kom Girona á ný í forystu á 26. mínútu og Daley Blind kom Girona í 3-1 á 39. mínútu. Alvaro Morata var þó ekki hættur. Hann minnkaði muninn í 3-2 fyrir hlé og kom boltanum aftur í netið skömmu síðar en það mark var dæmt af vegna rangstöðu. Staðan í hálfleik 3-2. Þrenna Morata kom hins vegar í síðari hálfleiknum. Hann jafnaði metin í 3-3 á 54. mínútu og virtist ætla að tryggja Atletcio eitt stig eða fleiri einn síns liðs. Svo fór hins vegar ekki. Þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Ivan Martin sigurmark Girona og tryggði liðinu 4-3 sigur. Liðið er því jafnt Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar en bæði lið eru með 48 stig eftir nítján leiki.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira