Viðskipti innlent

Bein út­sending: Þátt­taka Ís­lands í InvestEU-á­ætluninni

Atli Ísleifsson skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunarmála, boðar til fundarins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunarmála, boðar til fundarins. Vísir/Vilhelm

Kynningarfundur um þátttöku Íslands í InvestEU-áætluninni og framkvæmd hennar fer fram klukkan 9:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Það er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem boðar til fundarins, en hann sækja meðal annars fulltrúar þeirra banka og sjóða sem taka þátt í verkefninu auk forsvarsmanna áætlunarinnar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

„Þátttaka Íslands í InvestEU áætlun Evrópusamstarfsins gefur fyrirheit um stórauknar fjárfestingar í nýsköpun, stafrænni væðingu og grænum lausnum hér á landi. Áætlunin felur í sér aðgang að 26 milljarða evra ábyrgðarsjóði með sérstakri áherslu á stuðning við fyrirtæki í nýsköpun og nýrri tækni, sjálfbæra uppbyggingu innviða og verkefni í þágu loftslagsmála,“ segir í tilkynningu.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.

Um InvestEU áætlunina:

  • Þátttaka Íslands í InvestEU áætlun Evrópusamstarfsins gefur fyrirheit um stórauknar fjárfestingar í nýsköpun, stafrænni væðingu og grænum lausnum hér á landi. Áætlunin felur í sér aðgang að 26 milljarða evra ábyrgðarsjóði með sérstakri áherslu á stuðning við fyrirtæki í nýsköpun og nýrri tækni, sjálfbæra uppbyggingu innviða og verkefni í þágu loftslagsmála. Með þessu stóreykst aðgengi að fjármagni til nýsköpunar, stafrænnar þróunar og grænna lausna á sömu vaxtakjörum og bjóðast í ríkjum Evrópusambandsins, en markhópar InvestEU eru fjölmargir, t.d. fjármálafyrirtæki, opinberar stofnanir og opinber fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyrissjóðir og aðrir sjóðir en einnig lítil og meðalstór fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki.
  • Með InvestEU aukast tækifæri til að fjármagna eða sækja ábyrgð vegna stórra, samfélagslega mikilvægra verkefna á Íslandi, hvort sem þau eru á vegum opinberra aðila, sveitarfélaga eða einkaaðila. Sem dæmi má nefna fjármögnun verkefna á sviði orkuframleiðslu, orkuskipta og innleiðingar hringrásarhagkerfis og stuðning við nýsköpun í matvælaframleiðslu. Þar að auki styður áætlunin við önnur verkefni innan Samstarfsáætlunar ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar og eykur aðild því möguleika á þátttöku í stórum alþjóðlegum verkefnum á sviði nýsköpunar, sjálfbærrar þróunar og stafrænna umbreytinga.

Dagskrá fundarins

9:30-10:15 Welcome Speech

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Minister of Higher Education, Science and Innovation
  • Lucie Samcová-Hall Allen, Ambassador of the European Union to Iceland
  • Teresa Czerwińska, Vice President of the EIB Group
  • Giorgio Chiarion-Casoni, Director DG ECFIN InvestEU
  • Stefán Friðriksson, Senior Banker, Country Lead Iceland, NIB

10:15-10:30 IEU General Presentation

  • Irmantas Šimonis, European Commission, DG Economic and Financial Affairs, Deputy Head of Unit

10:30-11:00 InvestEU in Iceland – Presentation by Implementing Partners

  • Andreas Aristotle Papadimitriou, Investment Officer, EIB
  • Tomasz Kozlowski, Head of Institutional Mandate Relationships - Nordics, Baltics & CEE, EIF
  • Dmitri Kouznetsov, Director, Head of Public Sector and Utilities, NIB

11:00-11:45 Access to Finance

  • Dražen Budimir, European Commission, DG Internal Market, Industry, Entrepreneurship and SMEs, Policy Officer
  • Irmantas Šimonis, European Commission, DG Economic and Financial Affairs, Deputy Head of Unit on InvestEU Portal
  • Arnold Verbeek, Principal Advisor, EIB Advisory
  • Arnar Guðmundsson, Head of Investments, Business Iceland
  • Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, Head of Operations, Transition Labs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×