Kyrrstæð lægð dælir til okkar éljalofti Atli Ísleifsson skrifar 26. janúar 2024 07:15 Frost á landinu verður á bilinu núll til sjö stigum. Vísir/Vilhelm Nærri kyrrstæð lægð á Grænlandshafi mun dæla til okkar éljalofti úr suðvestri í dag. Smálægð mun fara allhratt norðaustur yfir land og það mun snjóa víða frá henni um tíma og vindur ganga í suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að úrkomulítið verði á Norðaustur- og Austurlandi á morgun, en éljagangur í öðrum landshlutum og síðdegis mun svo heldur að lægja. Frost verður á bilinu núll til sjö stigum. Á sunnudag er spáð suðvestan kalda, en allhvössum vindi syðst á landinu. Él í flestum landshlutum og svalt í veðri. Í tilkynningu frá Vegagerðarinnar segir að bakki með samfelldri snjókomu stefni nú óðfluga á suðvestanvert landið og er reiknað er með takmörkuðu skyggni á meðan hann gangi yfir. Á höfuðborgarsvæðinu verður hann líklega á ferðinni frá því um klukkan 8 til 10. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 10-18 m/s, en 15-20 við suðurströndina fyrri part dags. Víða él, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Frost 0 til 6 stig. Dregur úr vindi síðdegis. Á sunnudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 og snjókoma eða él. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Sunnanátt og rigning eða snjókoma, þó síst norðaustanlands. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Suðlæg átt með snjókomu eða éljum og vægu frosti, en rigningu eða slyddu um tíma á Suðaustur- og Austurlandi. Á miðvikudag: Norðlæg átt og él, en þurrt sunnan heiða. Kólnandi veður. Á fimmtudag: Breytileg átt, stöku él og kalt í veðri.
Veður Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Sjá meira